Án allra inngripa og óþæginda sem skurðaðgerð geta fylgt.
Sem fer ekki með hefðbundnu mataræði og líkamsrækt.
Eftir t.d. barnsburð eða þyngdartap.
Þarna er Lipomassage Silkligth meðferðin okkar lykillinn.
Bæði VelaShape og LED húðmeðferðin okkar hafa aðstoðað við aukningu á kollagen og elastin framleiðslu húðarinnar sem styrkja og þétta m.a. sjáanleg slit.
Það eru fjórar vikur á milli mynda.
Mini Make-over er tveggja vikna prógramm (hægt að taka það á lengri tíma eins og hún gerði) sem er sniðið að þeim sem vilja taka hratt meðferðar prógramm t.d. ef upp kemur utanlandsferð eða einhver viðburður er framundan og aðeins lítill tími til stefnu.
Hún er himinlifandi með árangurinn en ummálið minnkaði töluvert ásamt því að hún finnur mikin mun á appelsínuhúð og þéttingu í húðinni.
Mini makeover pakkinn inniheldur
VelaShape-2x skipti-1x í viku
Lipomassage-4x skipti-2x í viku
Totally Laser Lipo-4x skipti-2x í viku
Fit Form-8x skipti-2x í viku tvöfaldur
Kynntu þér mini makeover hér
ATH! Engin filter var notaður og hafa myndirnar ekki verið unnar á neinn hátt.
Laser Lipo er nýjasta meðferðin sem hjálpar fitufrumunni að losa út fitu með laser.
Í meðferðinni eru notaðar laser-blöðkur sem leysa upp fitu í fitufrumunum án allra óþæginda.
Þú einfaldlega liggur með laser-blöðkur á þér í 20 mínútur án þess að finna fyrir neinu nema mögulega örlitlum hita á meðan laserinn sér um vinnuna.
Eftir Totally Laser Lipo meðferðina er mælt með 30-40 mínútna brennslu æfingu innan við 12 tíma frá meðferð eða tíma í fitform meðferðina okkar strax á eftir til að hámarka árangur og aðstoða líkamann við að losa út fituna sem var verið að bræða úr fitufrumunumút með sogæðakerfinu.
Laser Lipo er vinsæl og eftirsótt meðferð um heim allan, hún er án allra aukaverkana og þú sérð árangur strax eftir fyrsta 20 mínútna tímann þinn - Við mælum þig fyrir og eftir hverja meðferð.
Það er mælt með að taka 8-16 skipti (2x í viku) til að sjá verulega góðan árangur á svæðinu sem vinna á með.
Það er þó persónubundið og fer eftir hve mikið af fitu á að taka, hjá sumum duga fjórir tímar á meðan aðrir þurfa 16 skipti.
Fyrir og Eftir
Þessi kom til okkar í 8 skipti (2x í viku í fjórar vikur) af Totally Laser Lipo á maga.
Totally Laser Lipo bræðir fituna úr fitufrumunum án inngripa og óþæginda. Tíminn er 20 mínútur og mælt er með því að fara a brennsluæfingu innan við 12 tíma frá meðferð til að hjálpa sogæðakerfinu að losa fituna út.
99% ánægja viðskiptavina sem tapa amk 4 cm + í hverri meðferð segir allt sem segja þarf.
Ummálsmælt er fyrir og eftir hverja meðferð.
Fitform Professional
Fitform Professional er mjög öflugt blöðku tæki eða svokölluð rafleiðnimeðferð sem skilað hefur frábærum árangri á undanförnum árum. Fitform Professional er með djúpa rafleiðni sem vinnur því sérstaklega í vöðvastyrkingu og á dýpri fitulögum.
Fitform Professional hjálpar til við að tóna og styrkja vöðva, örvar blóðflæði, minnkar bólgur og bjúg, eykur brennslu og minnkar ummál.
Fyrir hvern er Fitform Professional?
Fitform Professional hentar sérstaklega vel til að byggja upp magavöðva, lærvöðva og rassvöðva.
Hvað er meðferðin löng?
Tíminn er 30 mínútur
Hvað er mælt með mörgum tímum?
Bestur árangur næst með því að koma 2-3 sinnum í viku. Að auki eru margir sem kjósa að koma í tvöfaldan tíma til að auka árangur ennþá meira.
Er mælt með Fitform fyrir karlmenn?
Fitform meðferðin virkar jafnvel á karlmenn sem og konur. Karlmenn eru sérstaklega að koma í meðferð á brjóstum, maga og hliðum.
Lipomassage örvar húðina og fitusvæðið til að mýkja það og minnka misfellur til að gera svæðið sléttara. Á sama tíma hjálpar þessi örvun til við að losa fitu, eykur blóðflæði og virkjar sogæðakerfið.
Lipomassage virkjar sogæðakerfið og örvar blóðrásina þrefallt. Með því móti dregur meðferðin úr vökvasöfnun og bjúg ásamt því að losa líkamann við eiturefni.
Meðferðirnar sem hún fór í eru
- 8 skipti í Lipomassage Silkligth (2x í viku)
- 8 skipti í Velashape með áherslu á maga og læri (2x í viku)
Árangurinn hennar er glæsilegur en hún hefur styrkst og grennst á lærum, á rassi og í mittinu - Hún hefur mótast vel ásamt því aðlærapokar hafa minnkað og misfellur á bakinu. Að auki hefur ummálið minnkaðtöluvert á lærum og magasvæðinu.
ATH! Engin filter var notaður og hafa myndirnar ekki veriðunnar á neinn hátt.
Það er hægt er að greiða með debet, kredit og Netgíró á vefnum ásamt því að við bjóðum uppá raðgreiðslur í allt að 36 mán á kreditkort og kortalaus lán með Netgíró og Pei ef verslað er á staðnum!
Í ágúst s.l. heyrði ég af silkinu (Lipomassage Silkligth) hjá The House of Beauty að meðferðin gæti aðstoðað við verki og losað um bólgur og bjúg því ég var sárkvalin alla daga útaf gigt og Lúpus. Ég var á sterkum lyfjum sem heita Gabapentin dagsdagslega til að meika daginn.
Ég fór upphaflega í silkið 1x í viku og fann strax hvað það gerði mér gott. Bjúgurinn og bólgurnar minnkuðu og verkirnir fóru smám saman að hverfa. Ég jók þá silkið uppí 2x-3x í viku og þá fór mér að líða miklu betur. Ég gat svo hætt á lyfjunum sem ég hafði áður ekki getað farið í gegnum daginn án í september rúmum mánuði eftir að ég byrjaði í silkinu. Í dag fer ég í silkið 1x í viku til að halda mér góðri.
Á svipuðum tíma byrjaði ég að taka gosið út og drekka meira vatn. Svo fór ég útí að minnka hveiti og fór sem dæmi að borða kornabrauð án hveitis. Ég reyni líka að sleppa því að borða eftir kl 21 á kvöldin.
Í nóvember bætti ég svo við mig öðrum meðferðum hjá The House of Beauty. Fyrst fór ég Totally Laser Lipo til að grenna mig, maður finnur mjög fljótt hvernig ummálið minkar og buxurnar verða víðari í Lasernum. Eins bætti ég við Velashape meðferðinni og fór að blanda meðferðunum saman í hverri viku og þá fóru hlutirnir að gerast hratt. Núna 6 mánuðum eftir að ég byrjaði í meðferðum hjá The House of Beauty er ég búin að missa 23 kg, líkaminn búin að mótast og húðin orðin stinn og slétt. Mér líður miklu betur, heilsan er allt önnur og sjálfstraustið hefur aukist til muna. Ég gæti ekki verið ánægðri með meðferðirnar hjá The House of Beauty því þær hafa hreinlega bjargað mér!
- Sigríður Samúelsdóttir
Hún byrjaði 14.feb (fyrir mynd) og kláraði 1.maí (eftir mynd).
Það eru 2,5 mán á milli mynda.
Árangurinn hennar er glæsilegur. Hún hefur mótast vel, styrkst og grennst. Að auki hefur ummálið minnkað töluvert á lærum og magasvæðinu.
Kynntu þér brúðarmakeoverið okkar betur hér
ATH! Engin filter var notaður og hafa myndirnar ekki verið unnar á neinn hátt.
VELASHAPE II
VelaShape er gríðarlega vinsæl meðferð um heim allan sem mótar líkamann, dregur úr fitusöfnun og appelsínuhúð. Strax eftir fyrstu tímana er líkaminn búin að mótast, styrkjast og appelsínuhúð farin að minnka. Með VelaShape sérðu frábæran árangur án þess að vera þurfa að taka tíma frá daglegri rútínu og án mikilla óþæginda.
Meðferðin samanstendur af tækni sem mótar líkama þinn, stinnir og styrkir svo um munar og vinnur á appelsínuhúð ásamt uppsafnaðri fitu sem neitar að fara með hefðbundnu mataræði og líkamsrækt.
VelaShape tæknin sameinar innfrá rautt ljós með rafbylgjum ásamt svokallaðri ryksugu sem leiðir til djúp hitunar á fitufrumum, vefjum og undirliggjandi kollagen trefjum. Þessi tegund af hitun og sogi eykurframleiðslu á nýju og betra kollageni ásamt elastíni sem leiðir til stinningu á húð, ummálsminkun og gerir líkamann yfir höfuðið stinnari, fallegri og mótaðri.
Hver tími er 20 mín og er mælt með amk 3-6 tímum í röð til að sjá góðan árangur (1x – 2x í viku). Sumir þurfa meira aðrir minna. - Stórstjörnur nýta sér gjarnan Velashape meðferðina til að móta sig, stinna og styrkja fyrir viðburði og fyrirsætur Victoria Secret nýta sér meðferðin fyrir árlegu tískusýningu merkisins.