ÁSKRIFTARKERFIÐ VERÐUR KYNNT VON BRÁÐAR!

Við hlökkum til að kynna
NÝTT ÁSKRIFTARKERFI
VON BRÁÐAR
Með nýja áskriftarkerfinu okkar færðu vikulegar meðferðir, auðveldara greiðsluflæði og betri utanumhald – allt hannað fyrir enn meiri þjónustu og betri árangur.
Þeir sem skrá sig í THOB samfélagið fá aðgang að forskráningu áður en almenn skráning hefst – og tækifæri til að nýta sér RISA opnunartilboð sem verða aldrei endurtekin aftur.
Athugið: Takmörkuð pláss í boði – skráning tryggir ekki þátttöku, en veitir forgang.







Forgangur í samskipti & þjónustu
Þú færð skjótari svör og aðgang að nýjum þjónustum á undan öðrum.

Eigin meðferðaraðili & mánaðarleg eftirfylgni
Þú færð einn meðferðaraðila sem þekkir þig og fylgir þér í gegnum ferlið.

Afsláttur sem er aðeins fyrir meðlimi
Þú færð meðferðir á sérkjörum sem aðeins eru í boði fyrir meðlimi.

Sveigjanlegar mánaðarlegar greiðslur
Greiddu á þægilegan hátt í föstum mánaðarlegum greiðslum.

Þægilegar og reglulegar heimsóknir
Haltu þér við áætlun með einfaldari og stöðugri bókunum.

Aðgangur að þínum síðum til að fylgjast með árangri
Fylgstu með markmiðum þínum og árangri á einum stað.

Tryggðaverðlaun
Því lengur sem þú ert með okkur, því fleiri fríðindi færðu.

Betri árangur með stöðugum stuðningi
Sérfræðiaðstoð skilar varanlegum umbreytingum.

Sem meðlimur færðu aðgang að heildstæðri þjónustu sem er hönnuð til að styðja þig í gegnum allt ferlið – bæði meðferðirnar sjálfar ásamt aukinni eftirfylgni til að auka árangur enn frekar.
Innifalið í áskriftinni er:
✅ Sérsniðið meðferðarprógramm sem miðast við þín markmið og þarfir.
✅ Úthlutaður meðferðaraðili sem heldur utan um ferlið og fylgist með þínum framgangi hjá okkur.
✅ Mánaðarlegt stöðumat þar sem farið er yfir árangur, veittur stuðningur og prógrammið aðlagað ef þörf krefur.
✅ Afsláttarkjör á viðbótarmeðferðum og vörum.
✅ Þægilegt greiðsluflæði með mánaðarlegum greiðslum í gegnum heimabanka eða greiðslukort.
✅ Aðgangur að persónulegu heimasvæði þar sem þú sérð:
-
Framvindu og árangursmyndir
-
Mælingar og þróun yfir tíma
-
Yfirlit yfir bókanir, meðferðir og umbunarkerfi
Áskriftin hefur 8 vikna lágmarksbindingu, en eftir það hefurðu fullan sveigjanleika og getur sagt upp með aðeins 7 daga fyrirvara fyrir næstu endurnýjun. Þú stjórnar ferðinni!
Stofnmeðlimir fá einstakt stofnverð sem verður einungis í boði þegar við setjum áskrifarkerfið í loftið. Þetta verð verður ekki endurtekið.
Greiðsluflæðið er einfalt og þægilegt:
Þú greiðir fyrir fyrsta mánuðinn við skráningu. Eftir það endurnýjast áskriftin sjálfkrafa mánaðarlega, nema þú segir henni upp með að minnsta kosti 7 daga fyrirvara fyrir næstu greiðslu.
Þú getur valið hvort mánaðarleg greiðsla:
-
komi sem krafa í heimabanka
-
eða sé dregin beint af greiðslukorti
— allt eftir því hvað hentar þér best.
Já! Þú getur tekið allt að tvö hlé á ári, samtals í 4 vikur. Þetta veitir þér sveigjanleika ef þú ferð í frí, þarft pásu eða forfallast tímabundið.
Að auki framlengjast meðferðirnar áfram um 15 daga eftir hverja mánaðarlega endurnýjun.
Sem meðlimur færðu aðgang að öllum okkar vinsælustu meðferðum, þar á meðal:
UltraBody, Silk, Msculpta Pro og fleiri meðferðum sem eru sérvaldar og sérsniðnar til að hjálpa þér að ná hámarksárangri, aukinni heilsu og vellíðan.
Þú nýtur áskriftarverðs á þessum meðferðum og greiðir með þægilegum mánaðarlegum greiðslum, sem gerir þér kleift að stunda reglubundnar meðferðir með einfaldleika og sveigjanleika.
Þú færð persónulegan meðferðaraðila sem heldur utan um ferlið og fylgist með þínum framgangi hjá okkur. Þó svo að það sé ekki alltaf sami meðferðaraðili sem framkvæmir meðferðirnar, hefur þinn meðferðaraðili alltaf yfirsýn yfir þín mál og sér til þess að allt gangi vel og samkvæmt áætlun.
