Nánari lýsing
Í Thigh Sculpt meðferðinni vinnum við á fitusöfnun á lærum ásamt því að við þéttum lausa og slappa húð á svæðinu og brjótum niður appelsínuhúð.
Nú geturðu þétt lausa húð, losað þig við staðbundna fitu, lyft og mótað rassinn, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
UltraBody Thigh Sculpt
Meðferðartími: 70 mínútur
ATH! Þú getur verslað þér UltraBody meðferðirnar strax en opnað verður fyrir tímabókanir þann 20. nóvember 2023.
Spurningar og svör
Hvernig virka UltraBody Contour meðferðin?
Meðferðin vinnur þríþætt á líkamanum með því að brjóta niður óæskilega fitu úr fitufrumunum og annaðhvort flytja hana yfir á rassinn (í Buttlift meðferðinni) til að auka ummálið eða vinna hana út úr líkamanum í gegnum sogæðakerfið ásamt því að hún þéttir lausa húð, bætir áferð húðar og mótar líkamann.
Hvað þarf að líða langt á milli meðferða?
Til að ná sem bestum árangri er ráðlagt að láta líða að minnsta kosti 7 daga á milli meðferða.
Hvað verður um fituna þegar unnið er á staðbundinni fitu?
Fitufrumurnar eru ennþá til staðar eftir meðferðina en tæknin gerir það að verkum að fitufruman mun tæma innihald sitt. Innihaldið í fitufrumunum samanstendur af vatni, glýseróli (sykur) og fríum fitusýrum. Eftir meðferð frásogast glýserólið eða sykurinn. Vatnið ber svo fríu fitusýrurnar í gegnum sogæðakerfið, í gegnum nýrun og lifrina og flyst hún síðan út úr líkamanum með svita, þvagi og úrgangi.
Munu sentimetrarnir sem ég losna við haldast eftir að meðferðarprógrammi er lokið?
Í meðferðinni erum við ekki að fjarlægja fitufrumurnar heldur minnka innihaldið í þeim svo eftir situr lítil og tæmd fitufruma og þar af leiðandi minna ummál, alveg eins og gerist þegar um náttúrulegt fitutap er að ræða. Það fer því aðallega eftir lífsstílnum þínum, ef þú heldur heilbrigðum lífstíl og mataræði þá mun árangurinn haldast, ef ekki þá er hætta á að fitufruman fyllist aftur af fitu með tímanum eins og myndi gerast með hefðbundnu fitutapi.
Hvað mun ég þurfa mörg skipti?
Fjöldi skipta fer eftir hve miklum árangri þú vilt ná fram og svæðinu sjálfu, hversu mikið þú þarft til að ná markmiðum þínum. Við getum ráðlagt þér persónulega í ráðgjöf hjá okkur. Við mælum þó í flestum tilfellum með að lágmarki 4-6 meðferðum sem eru gerðar vikulega, sumir þurfa þó meira og aðrir minna.
Af hverju fá sumir meiri árangur en aðrir?
Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við tækninni. Þar sem við erum að vinna með lifandi frumur, þá getum við aldrei sagt nákvæmlega fyrir fram hvernig hver og einn bregst við meðferðinni og hversu hratt. Hjá sumum sjáum við árangurinn koma gríðarlega hratt á meðan það getur tekið lengri tíma hjá öðrum. Bara alveg eins og þegar fitutap verður með hefbundnum hætti eins og hreyfingu og mataræði, það gengur bara hraðar hjá sumum. Þarna kemur líka inní hvort sogæðakerfið sé að vinna hratt og vel ásamt öðrum líkamlegum þáttum og auðvitað lífsstíl líka.
En ef þér finnst árangurinn vera að koma hægar en búist var við þá viljum við heyra það og reyna að finna út með þér hvað veldur. Við erum líka með allskyns góð ráð sem geta hjálpað til og getum við þá sem dæmi aðstoðað sogæðakerfið að vinna hraðar með því að bæta inn öflugu sogæðameðferðinni okkar í prógrammið þitt 1x í viku.
Ef eitthvað af eftirfarandi á við hjá þér er þér ráðlagt frá því að fara í UltraBody meðferð:
- Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti
- Ef það eru hjartavandamál eða sjúkdómar
- Ef þú ert með ómeðhöndlaðan háan blóðþrýsting
- Krabbamein
- Nýrnaskemmdir, sjúkdómar eða vandamál
- Lifrarskemmdir, sjúkdómar eða vandamál
- Blóðsjúkdómur, áverkar eða blæðing
- Aðskotahlutur úr plasti eða málmi
- Húðsjúkdómar eins og exem, húðbólga eða útbrot
- Gangráður eða annað sambærilegt
- Fyllingarefni eða bótox á meðferðarsvæðinu
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:
Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Þú getur verslað þér UltraBody meðferðirnar strax en tímabókanir hefjast þann 20. nóvember 2023.
Ath Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.