Selma Ragnars - Viðskiptavinur The House of Beauty
Íris Bettý
“Eftir nokkur ár í fullu starfi og krefjandi námi þá fannst mér kominn tími til að gera eitthvað fyrir sjálfa mig. Þrátt fyrir reglulega hreyfingu og heilsusamlegt líferni þá langaði mig að setja líkamlega heilsu ofar í forgangsröðunina.
Ég fékk góðar ráðleggingar frá fagfólki The House of Beauty og keypti 6 vikna líkams-meðferðarpakka sem innihélt Lipomassage Silklight, Msculpta PRO, Totally Laser Lipo og Velashape. Það var vel útskýrt hvernig tækin virka og hvað hægt er að gera sjálfur til þess að meðferðin skili sem mestum árangri. Ég er mjög sátt með árangurinn og mæli svo sannarlega með þessari stofu. Mér finnst ég heldur betur hafa frískað upp á mig. Fyrir utan það hvað líkaminn styrktist á allan hátt og húðin varð þéttari þá hurfu einnig nokkrir cm sem var bara auka bónus.
Síðast en ekki síst þá er yndislegt starfsfólk á stofunni og stelpurnar taka svo vel og fallega á móti manni sem verður til þess að gera upplifunina algerlega einstaka.
Hjartans þakkir fyrir mig!
Íris Bettý - Viðskiptavinur The House of Beauty
Hedda
" Ég mætti í upphafi frekar buguð til þeirra í The House of Beauty eftir að ég sá auglýst á Facebook. Ég hafði reynt ýmislegt en ekki náð neinum sýnilegum árangri fyrr.
Við mér tóku yndislegar stúlkur sem tóku mig í ráðgjöf og mælingu og sýndu mér hvaða meðferðir myndu henta mínum markmiðum.
Mikið af lausnum voru í boði, hvort sem mig langaði að grennast, styrkjast eða losa bólgur.
Maginn var slappur eftir barnsburð og mig vantaði aðstoð við að styrkjast og léttast og losa bólgur og bjúg í líkamanum.
Maður er alltaf boðinn velkominn með brosi og ég treysti mínum meðferðaraðilum 100% í að gera það allra besta fyrir minn skrokk.
Ekki skemmir fyrir hvað þetta er fallegt og heillandi umhverfi, þetta er eins og að stíga inn í annan heim.
Eftir síðustu meðferð hjá The House of Beauty þá hef ég misst 36 cm um magasvæðið og ég er svo ánægð með að hafa gefið þessu tækifæri.
Ég vona að þessi umsögn verði öðrum sem hvatning. Lausnirnar eru til það þarf bara að leita þeirra :)"
Hedda - Viðskiptavinur The House of Beauty
Hún elskulega Hedda var svo yndisleg að leyfa okkur að deila hennar sögu og mælingum.
En mælingarnar eru af magasvæðinu eingöngu sem var hennar fókus þegar hún kom til okkar í sumar.
Eins og sjá má missti hún heila 36 cm á þremur svæðum yfir magasvæðið eingöngu á 6 vikum sem verður að teljast glæsilegur árangur,
Kristín Wium
" Í janúar var ég algjörlega að gefast upp á sjálfri mér, fannst ég þung bæði andlega og líkamlega. Ég var búin að íhuga allskonar, bæði magaaðgerðir og fitusog. Svo sá ég viðtal við Sigrúnu á visir.is og ákvað að kynna mér meðferðinar sem í boði eru hjá The House Of Beauty. Ég fór í kjölfarið í mælingu og ráðgjöf og keypti mér tíma í Velashape og í Silk - og þá var ekki aftur snúið! Ég fór að fara 2x í viku og eftir 5 vikur voru 37 cm farnir af mér. Það sem þessar meðferðir hafa gefið mér, en á þessum vikum missti ég 10 kg líkamlega - en svo miklu meira andlega. Ég hlakka til þess að mæta í tímana mína, bæði vegna þess að árangurinn hefur verið svo frábær en ekki síður vegna yndislegu stúlknanna sem þarna vinna. Takk fyrir mig - þið losnið aldrei við mig."
Kristín Wium - Viðskiptavinur The House of Beauty
Fyrir og eftir
Hér má sjá fyrir og eftir myndirnar hennar elskulegu Kristínar Wium sem var svo yndisleg að leyfa okkur að birta þær undir nafni
og sýna líka mælingarnar hennar með.
Hér má sjá myndband af umsögn frá Kristínu Wium
Súsanna Ósk
Hún Súsanna byrjaði hjá okkur í meðferðum með það að markmiði að bæta heilsuna og daglega verki.
En hún kom til okkar sárþjáð og gekk nærri með göngugrind.
Árangurinn hennar er glæsilegur en hún hefur bætt heilsuna gríðarlega mikið ásamt því að hafa misst 91 cm í ferlinu sem er góður bónus
Hún var svo yndisleg að vilja deila árangrinum sínum með okkur hinum..
Áhugasamir endilega hlustið á ótrúlega mögnuðu söguna hennar í þessu myndbandi hér að neðan 👇👇👇
Takk elskulega Súsanna Ósk Sims fyrir þessi fallegu orð, fyrir að leyfa okkur að segja frá og sýna þinn glæsta árangur 💞
" Ég byrjaði í meðferðum hjá The House of Beauty í janúar 2019 og er hvergi nærri hætt. Ég var nýlega búin að taka ,,fyrir" myndirnar, því ég hafði veika von um að ,,næsta átak" myndi skila einhverjum árangri.
Hafði heyrt af Lipomassage ,,silk" hjá vinkonum sem hafa stundað það lengi.
Var alls ekki hrifin af einhverjum skyndilausnum... sem ég hélt að væru í boði hjá THOB.
Hvað ég var fávís!
Á móti mér tóku yndislegar konur. Eftir að hafa prófað ,,silkið" tvisvar, varð ég forvitin um hinar meðferðirnar; velashape, laserlipo og fitform er það sem ég hef prófað.
Það eru 10 ár síðan ég var greind með vefjagigt. Hreyfing og rétt mataræði eru helstu ráðin til að ná bata við henni.
Það er þó flókið að stunda hreyfingu þegar líkaminn er undirlagður af verkjum. Þau er kraftaverki líkast, áhrifin eftir ,,silk".
Jafnast á við marga tíma af nuddi og húðin verður þar að auki silkimjúk og slétt.
Vegna góðra áhrifa af silkmeðferðinni, fór ég að mæta sífellt oftar í ræktina.
Ég gat það, því verkirnir voru orðnir svo miklu minni.
Fljótlega skipti ég um mataræði. m.a. fékk ég hjálp við það hjá starfsfólki.
Það að ég hef haldið mig við það má þakka stelpunum hjá THOB. Þeirra mildilega hvatning og stuðningur höfðu allt að segja.
Ég er oftast með ræktarfötin í bílnum og plana ræktina í kringum tímana.
Ég drekk miklu meira vatn í dag. Það lærði ég einnig hér.
Að auki fór ég í svuntuaðgerð fyrir nokkrum árum hjá lýtalækni. Eftir sátu ljót ör á mjöðmum með með fitukeppum þar fyrir ofan.
Ég átti pantaða aðgerð þar sem laga átti örið og fitusjúga af mjaðmakömbum.
Þegar ég mætti til læknisins í viðtal fyrir aðgerð kom í ljós að aðgerðin var óþörf. Stelpunum í THOB hafði tekist að laga þetta án nokkurrar aðgerðar eða inngrips! Aðgerðin var því afpöntuð!
Ef fólk aðeins vissi um örlítið brot af því sem stofan getur hjálpað þér með....
Það er einnig tilhlökkun að koma inn í yndislegt andúmsloftið, þar sem allar konurnar taka vel á móti þér með nærgætni, hvatningu og hrósi.
Niðurstaða:
Núna er ég búin að taka af mér rúm 18 kg og eru fuuuullt af cm farnir.
Líkamsformið og líðanin hefur líka breyst ótrúlega mikið."
Nafnlaust - Þessi elska sem sendi okkur þessi fallegu orð kaus að láta nafn síns ekki getið og við virðum það að sjálfsögðu en gátum ekki sleppt því að deila þessum orðum með ykkur.
" Í ágúst s.l. heyrði ég af silkinu (Lipomassage Silkligth) hjá The House of Beauty að meðferðin gæti aðstoðað við verki og losað um bólgur og bjúg því ég var sárkvalin alla daga útaf gigt og Lúpus. Ég var á sterkum lyfjum sem heita Gabapentin dagsdagslega til að meika daginn.
Ég fór upphaflega í silkið 1x í viku og fann strax hvað það gerði mér gott. Bjúgurinn og bólgurnar minnkuðu og verkirnir fóru smám saman að hverfa. Ég jók þá silkið uppí 2x-3x í viku og þá fór mér að líða miklu betur.
Ég gat svo hætt á lyfjunum sem ég hafði áður ekki getað farið í gegnum daginn án í september rúmum mánuði eftir að ég byrjaði í silkinu.
Í dag fer ég í silkið 1x í viku til að halda mér góðri.
Á svipuðum tíma byrjaði ég að taka gosið út og drekka meira vatn. Svo fór ég útí að minnka hveiti og fór sem dæmi að borða kornabrauð án hveitis. Ég reyni líka að sleppa því að borða eftir kl 21 á kvöldin.
Í nóvember bætti ég svo við mig öðrum meðferðum hjá The House of Beauty.
Fyrst fór ég Totally Laser Lipo til að grenna mig, maður finnur mjög fljótt hvernig ummálið minkar og buxurnar verða víðari í Lasernum.
Eins bætti ég við Velashape meðferðinni og fór að blanda meðferðunum saman í hverri viku og þá fóru hlutirnir að gerast hratt.
Núna 6 mánuðum eftir að ég byrjaði í meðferðum hjá The House of Beauty er ég búin að missa 23 kg, líkaminn búin að mótast og húðin orðin stinn og slétt.
Mér líður miklu betur, heilsan er allt önnur og sjálfstraustið hefur aukist til muna. Ég gæti ekki verið ánægðri með meðferðirnar hjá The House of Beauty því þær hafa hreinlega bjargað mér."
Sigríður Lilja Samúelsdóttir - Viðskiptavinur The House of Beauty