40 mínútur af Silk jafnast á við 10 nuddtíma á einu bretti

Kolbrún Róbertsdóttir hefur komið til okkar í Silk Lipomassage, sogæðanuddið, í mörg ár. Hún valdi þessa meðferð upphaflega með það í huga að styrkja og stinna húðina en tók svo óvænt eftir því að gigtarverkir, sem voru að hrjá hana, höfðu snarminnkað.
Kolbrún er með vefjagigt og segir að reglulegar heimsóknir í The House of Beauty séu lykilþáttur í að halda sér góðri af verkjum, en nefnir einnig að hreyfing og hollt mataræði hjálpi til.

Það er upplifun Kolbrúnar að Silk-ið komi kerfinu í gang sem leiðir til skarpari hugsunar sem verður að betri ákvarðanatöku varðandi heilsuna. Hún fann líka betri líðan, meiri orku, eins og öll hamingjuhormónin fari á fullt.
Hún vonast til að sín saga geti verið hvatning fyrir aðra að koma sér úr vítahring vefjagigtar. Hún mælir með þessum þremur lykilþáttum, hreyfinu + mataræði + Silk sogæðanudd, hún segir að best sé að byrja í Silk-inu, þá minnka verkir og bólgur og þá er auðveldara að byrja að hreyfa sig, þegar hreyfingin er komin í gang fylgir mataræðið oft á eftir.
Lesa allt viðtalið hér

