“Guðsgjöf að rekast á umfjöllun um meðferðina”

Stella Björk Halldórsdóttir prufaði Silk Lipomassage sogæðanuddið í fyrsta skiptið í ágúst 2025, til að byrja með kom hún á sirka viku fresti en í dag kemur hún u.þ.b. tvisvar í mánuði. Hún segist hafa fundið til í fyrsta tímanum og hafi ekki verið alveg sannfærð, eitthvað sagði henni þó að gefa þessu tækifæri og eftir fjórða tímann fann hún mikinn mun, þá fann hún að þetta var að gera eitthvað verulega gott fyrir hana.

Stella las um meðferðina í grein sem birtist á Vísir.is, það var eitthvað við sögu viðmælandans sem greið hana og telur að hún hafi lesið greinina á hárréttum tíma. Á þeim tíma leið Stellu illa á líkama og sál og var eiginlega hætt að fara út úr húsi, hún segir það því Guðsgjöf að hafa rekist á umfjöllunina um Silk sogæðanuddið.

Sem einstaklingur með vefjagigt og bakgrunn í líkamlega erfiðri vinnu var Stella búin að prófa ýmislegt en smám saman urðu verkjalyf fastur hluti af tilverunni, hún var ekki sátt við stöðuna en gat ekki, hún var farin að eiga erfitt með gang.
Í dag, rúmum 8 mánuðum eftir að Stella fór að venja komur sínar í Silk sogæðanuddið finnur hún að orkan er að koma aftur, hún er farin að vilja fara meira út, hitta fólk og gera hluti fyrir sjálfa sig, ,,Ég er bara einhvern veginn allt önnur manneskja, það segir kannski mest” segir Stella. Hún mælir hiklaust með Silk sogæðanuddinu því henni finnst þetta hafa gefið henni nýtt líf. Hún þarf ekki lengur að reiða sig eins mikið á verkjalyf sem eitt og sér er ótrúlegt að hennar mati.
Lesa allt viðtalið hér
