Nánari lýsing
Í nýrri og uppfærðri Tummy Lift meðferð þéttum við lausa og slappa húð á magasvæðinu öllu ásamt því að vinna á húðslitum og gera húðina almennt þéttari, stinnari og fallegri.
UltraBody Tummy Lift
Þú færð sjáanlega stinnari og þéttari húð með sérhæfðri 4 þrepa meðferð sem styrkir húð á kvið. Þetta háþróaða ferli er hannað til að endurnýja, tóna, styrkja og lyfta húðinni á kviðsvæðinu án allra óþæginda.
Skref 1: Meðferðin hefst með LED-ljósameðferð til að örva kollagenframleiðslu og bæta teygjanleika húðarinnar. Þetta mjúka, róandi skref undirbýr húðina með því að styrkja hana og skapa þannig grunn fyrir dýpri virkni.
Skref 2: Næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög til að örva húðstyrkingu og stinnleika. Með því að hita húðina með þessum hætti myndast svokallaður staðbundinn bruni en án óþæginda, sem hvetur líkamann til að margfalda kollagen- og elastínframleiðslu á meðferðarsvæðinu, ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er þéttari og stinnari húð og minni appelsínuhúð.
Skref 3: Í þessu skrefi er beitt mildum neikvæðum þrýstingi sem örvar sogæðakerfið, losar um eiturefni og dregur úr bólgum. Þetta skref fíneserar húðina, bætir blóðflæði og sogæðaflæði og flýtir þannig fyrir ferlinu við að styrkja húðina.
Skref 4: Að lokum er öflugu húðstyrkjandi serumi þrýst inn í dýpri húðlögin með nýstárlegri meðferðartækni sem nefnist "Virtual Mesotherapy". Þetta ferli eykur frásog húðarinnar, opnar húðfrumurnar í dýpri lögum og gerir virkum efnum þannig kleift að komast inn í frumurnar án þess að nota sársaukafullar nálar.
Heildartími meðferðar er 60 mínútur.
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Spurningar og svör
Hvernig virkar UltraBody Contour meðferðin?
Meðferðin vinnur þríþætt á líkamanum með því að brjóta niður óæskilega fitu úr fitufrumunum og annaðhvort flytja hana yfir á rassinn (í Buttlift meðferðinni) til að auka ummálið eða vinna hana út úr líkamanum í gegnum sogæðakerfið ásamt því að hún þéttir lausa húð, bætir áferð húðar og mótar líkamann.
Hvað þarf að líða langt á milli meðferða?
Til að ná sem bestum árangri er ráðlagt að láta líða að minnsta kosti 7 daga á milli meðferða. Almennt er að meðferðirnar séu teknar með 7-10 daga millibili. Ekki er mælt með að láta líða meira en tvær vikur á milli meðferða til að tilætlaður árangur náist.
Hvað verður um fituna þegar unnið er á staðbundinni fitu?
Fitufrumurnar eru ennþá til staðar eftir meðferðina en tæknin gerir það að verkum að fitufruman mun tæma innihald sitt. Innihaldið í fitufrumunum samanstendur af vatni, glýseróli (sykur) og fríum fitusýrum. Eftir meðferð frásogast glýserólið eða sykurinn. Vatnið ber svo fríu fitusýrurnar í gegnum sogæðakerfið, í gegnum nýrun og lifrina og flyst hún síðan út úr líkamanum með svita, þvagi og úrgangi.
Munu sentimetrarnir sem ég losna við haldast eftir að meðferðarprógrammi er lokið?
Í meðferðinni erum við ekki að fjarlægja fitufrumurnar heldur minnka innihaldið í þeim svo eftir situr lítil og tæmd fitufruma og þar af leiðandi minna ummál, alveg eins og gerist þegar um náttúrulegt fitutap er að ræða. Það fer því aðallega eftir lífsstílnum þínum, ef þú heldur heilbrigðum lífstíl og mataræði þá mun árangurinn haldast, ef ekki þá er hætta á að fitufruman fyllist aftur af fitu með tímanum eins og myndi gerast með hefðbundnu fitutapi. Stundum getur verið ráðlagt að koma í eina viðhalds meðferð á 2-3 mánaða fresti til að viðhalda árangri.
Hvað mun ég þurfa mörg skipti?
Fjöldi skipta fer eftir hve miklum árangri þú vilt ná fram og svæðinu sjálfu, hversu mikið þú þarft til að ná markmiðum þínum. Við getum ráðlagt þér persónulega í ráðgjöf hjá okkur til að gefa þér áætlaðan fjölda.
Að meðaltali þá er heildar meðferðarprógramm fyrir meðalmanneskju á milli 6-9 skipti fyrir undirhöku og 8-12 skipti fyrir öll önnur svæði sem tekin eru með viku til tíu daga millibili, svo að tilætluðum árangri sé náð.
Hvenær byrja ég að sjá árangur þegar prógrammið er byrjað?
Sjáanlegur árangur kemur að öllu jöfnu fram eftir tíma þrjú til fjögur í meðferðarprógramminu þrátt fyrir að ummálsminnkun á svæðinu megi yfirleitt sjá frá fyrsta tíma.
Húðþétting tekur að öllu jöfnu lengri tíma að fá sjáanlegan árangur heldur en þegar niðurbrot fitu er annarsvegar. Kollagen og elastin framleiðsla húðarinnar hefst um 8 dögum eftir fyrstu meðferð og heldur virknin svo áfram í 8 vikur eftir meðferð, því er endanlegur árangur meðferðar á húð komin fram u.þ.b. 2 mánuðum eftir að meðferðarprógrammi líkur.
Af hverju fá sumir meiri árangur en aðrir?
Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við tækninni. Þar sem við erum að vinna með lifandi frumur, þá getum við aldrei sagt nákvæmlega fyrir um það hvernig hver og einn bregst við meðferðinni og hversu hratt.
Hjá sumum sjáum við árangurinn koma gríðarlega hratt á meðan það getur tekið lengri tíma hjá öðrum. Bara alveg eins og þegar fitutap verður með hefbundnum hætti með hreyfingu og mataræði, það gengur bara hraðar hjá sumum. Þarna kemur líka inní hvort sogæðakerfið sé að vinna hratt og vel ásamt öðrum líkamlegum þáttum og auðvitað lífsstíl líka.
Við reynum þó eftir bestu getu að finna út áður en meðferðarprógramm hefst hvort það sé eitthvað hjá viðkomandi sem geti dregið úr árangri með heilsufarsskýrslu, og spurningarlista til að hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir ef þarf til að sá hinn sami nái tilætluðum árangri.
Ef fitusöfnun er lítil á meðferðarsvæðinu og verið að fínpússa svæðið þá missir sá hinn sami færri teljanlega sentimetra í heild á svæðinu í meðferðarprógramminu sínu heldur en ef um meiri fitusöfnun væri að ræða. Að auki sem sjáanlegur árangur er ekki eins áberandi eins og þegar viðkomandi hefur meiri fitu fyrir meðferðina til að fjarlægja. Það er einfaldlega bara minni fita til að taka og því minna ummál til að missa.
Að sama skapi ef fitusöfnun er töluvert mikil á meðferðarsvæðinu þá getur verið að viðkomandi þurfi fleiri skipti en 8-12 skipti sem er meðaltalið til að ná tilskyldum árangri.
Ef þér finnst árangurinn vera öðruísi eða hægari en hér er talað um þá viljum við heyra það og reyna að finna út með þér hvað veldur. Við erum líka með allskyns góð ráð sem geta hjálpað til og getum við þá sem dæmi aðstoðað sogæðakerfið að vinna hraðar með því að bæta inn öflugu sogæðameðferðinni okkar í prógrammið þitt og fleira.
Ef eitthvað af eftirfarandi á við hjá þér er þér ráðlagt frá því að fara í UltraBody meðferð:
- Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti
- Ef það eru hjartavandamál eða sjúkdóma
- Ef þú ert með ómeðhöndlaðan háan blóðþrýsting
- Krabbamein eða í krabbameinsmeðferð
- Nýrnaskemmdir, sjúkdóma eða vandamál
- Lifrarskemmdir, sjúkdóma eða vandamál
- Blóðsjúkdóm, áverka eða sár
- Aðskotahlut úr plasti eða málmi á meðferðarsvæðinu
- Húðsjúkdóma eins og exem, eða útbrot á meðferðarsvæðinu
- Gangráðu eða lyfjadælu
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:
Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.