Silk Lipomassage gegnir lykilhlutverki í heilsunni minni

Kristín Jóhanna Hirst hefur verið fastakúnni í Silk Lipomassage í mörg ár, það sem upphaflega var hugsað sem leið til að ná útlitslegum markmiðum, endaði á að gegna lykilhlutverki og vera ómissandi hluti af hennar heilsu rútínu.
Það er upplifun Kristínar að Silk Lipomassage sogæðanuddið hafi mun víðtækari áhrif en hún gerði sér grein fyrir í upphafi. Meðferðin eykur grunnbrennslu líkamans, er mótandi, grennandi, minnkar appelsínuhúð og er vatnslosandi. Einnig minnkar hún bjúg og bólgur sem hefur gríðarleg áhrif á líðanina.

Kristín er með slit- og liðagigt og segir að meðferðin minnki verki og auki hreyfigetu og liðleika
Kristín vill að Silk Lipomassage sé kynnt fyrir landsmönnum sem og ráðamönnum, þá hversu öflug meðferðin er og hvernig hún getur bætt líðan margra einstaklinga sem glíma við flókna líkamlega kvilla þar sem hún gæti, í sumum tilfellum, jafnvel dregið úr langtíma lyfjanotkun.
Innskot: Mörg stéttarfélög niðurgreiða Silk Lipomassage sogæðanudd, við kvetjum ykkur til að kanna málið hjá ykkar stéttarfélagi.
Kristín mælir hiklaust með meðferðinni fyrir allar konur, jafnvel þó þær hafi enga sérstaka kvilla eins og gigt eða þess háttar. Þetta sé alhliða heilsunudd með margvíslegum jákvæðum áhrifum í bónus.
Lesa allt viðtalið hér: https://www.visir.is/g/20262832775d/batinn-kom-ur-olik-legri-att-fegrunar-med-ferd-vard-lykillinn-ad-baettri-heilsu

