Nánari lýsing
Í Chin Lift meðferðinni þéttum við lausa og slappa húð á hálsinum og mótum kjáklalínuna.
Með Chin Lift býðst þér valkostur við þéttingu á lausri húð á hálsinum án inngripa og skurðaðgerða.
Ath í Chin Lift er eingöngu verið að vinna með lausa húð, ef þú vilt líka vinna á fitusöfnun og undirhöku þá hentar Double Chin meðferðin þér betur.
Meðferðarprógramm í Chin Lift eru 8-12 skipti
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Chin Lift
Skref 1: Meðferðin hefst með LED-ljósameðferð til að örva kollagenframleiðslu og bæta teygjanleika húðarinnar. Þetta mjúka, róandi skref undirbýr húðina með því að styrkja hana og skapa þannig grunn fyrir dýpri virkni.
Skref 2: Næst beitum við sértækum hita á dýpri húðlög til að stuðla að húðstyrkingu undir hökunni. Þessi milda og áhrifaríka upphitun örvar framleiðslu á kollageni og elastíni til að styðja við endurnýjun frumna. Niðurstaðan er sléttari og stinnari húð, sem mótar kjálkalínuna betur.
Skref 3: Í þessu skrefi notum við neikvæðan þrýsting til að losa um eiturefni , vökvasöfnun og óæskilega fitu undir hökunni. Þetta ferli eykur blóðflæði og sogæðaflæði og styrkir náttúrulega getu líkamans til að fjarlægja eiturefni og vökvasöfnun á skilvirkan hátt. Með því að styðja við náttúrulega afeitrun hámarkar meðferðin áhrifin og hraðar ferlinu og árangur.
Skref 4: Við þrýstum síðan öflugu húðstyrkjandi serumi inní dýpri lög húðarinnar á hökusvæðinu með háþróaðri meðferðartækni sem nefnist Virtual Mesotherapy, einnig þekkt sem sýndarnálarmeðferð. Þessi nálalausa aðferð skilar seruminu á áhrifaríkan hátt inní frumurnar, eykur stinnleika, sléttir húðina og mótar hökusvæðið. Þetta lokaskref fullkomnar og bætir árangurinn af meðferðinni.
Heildartími meðferðar: 50 mínútur.
Hér má sjá fyrir og eftir Double Chin meðferð hjá okkar viðskiptavini:



Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:


Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
