Nánari lýsing
Hin fræga BBL (Brazilian Butt Lift) er nú loksins fáanleg án allra inngripa með UltraBody BUTTLIFT.
Mótaðu og lyftu rassinum í 60 mínútna langri meðferð.
UltraBody BUTTLIFT er bylting í mótun, stækkun og lyftingu á rassinum á öruggan máta án skurðaðgerðar.
Í UltraBody BUTTLIFT er þríglýseríðin (niðurbrotin fita með UltraBody CONTOUR tækninni) notuð til að lyfta og stækka rassinn með það að markmiði að fá velmótaðann, þéttann og stinnann afturenda.
Við getum bæði bætt við ummál eða minnkað ummál á rassinum eftir hvað hentar, þar sem óskir hvers og eins viðskiptavinar eru mismunandi.
Munurinn á UltraBody BBL Buttlift og UltraBody BBL full Buttlift er sá að fyrri meðferðin er hugsuð fyrir þá sem vilja móta og lyfta rassinum og vinna á húðinni en vilja minni umbreytingu og stækkun heldur en við náum með BBL FULL Buttlift meðferðinni.
UltraBody BBL Buttlift
Meðferðartími: 60 mínútur
ATH! Þú getur verslað þér UltraBody meðferðirnar strax en opnað verður fyrir tímabókanir þann 20. nóvember 2023.

Nú geturðu þétt lausa húð, losað þig við staðbundna fitu, lyft og mótað rassinn, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Spurningar og svör
Fyrir hverja hentar UltraBody Buttlift meðferðin best?
Við sjáum bestan árangur hjá viðskiptavinum sem hafa einhverja fitu til að vinna með og vöðva til að byggja á. Viðskiptavinir sem hafa mjög litla fitu á eða í kringum svæðið og lítinn vöðvamassa á svæðinu taka lengri að byggja upp rassinn og sjá ekki sömu loka útkomu og fyrri hópurinn.
Finn ég til eftir UltraBody Full Buttlift meðferðina og eru einhverjar aukaverkanir?
Viðskiptavinir eru oft með „vægar“ aukaverkanir, svo sem bólgu og roða á meðhöndluðu svæði, sem bæði hverfur mjög fljótt á eftir meðferð. Innan við klukkutíma eru bólgur og roðinn að mestu farin. Möguleiki er á að fá mar eftir fyrstu skiptin sem hverfa venjulega alveg innan þriggja daga frá meðferð.
Hvað þarf ég mörg skipti af UltraBody Buttlift?
Fjöldi skipta fer eftir hve miklum árangri þú vilt ná fram og svæðinu sjálfu, hversu mikið þú þarft til að ná markmiðum þínum. Við getum ráðlagt þér persónulega í ráðgjöf hjá okkur. Við mælum þó í flestum tilfellum með að lágmarki 4-6 meðferðum sem eru gerðar vikulega, að auki sem við mælum með að koma í eina meðferð á 6-8 vikna fresti til að viðhalda árangrinum.
Er árangurinn í UltraBody Buttlift varanlegur?
Í UltraBody Buttlift meðferðunum er mælt með að koma í eina meðferð með um 6-8 vikna millibili eftir að meðferðarprógrammi lýkur til að halda árangrinum alveg við.
Hvernig virka UltraBody Contour meðferðin?
Meðferðin vinnur þríþætt á líkamanum með því að brjóta niður óæskilega fitu úr fitufrumunum og annaðhvort flytja hana yfir á rassinn (í Buttlift meðferðinni) til að auka ummálið eða vinna hana út úr líkamanum í gegnum sogæðakerfið ásamt því að hún þéttir lausa húð, bætir áferð húðar og mótar líkamann.
Hvað þarf að líða langt á milli meðferða?
Til að ná sem bestum árangri er ráðlagt að láta líða að minnsta kosti 7 daga á milli meðferða.
Af hverju fá sumir meiri árangur en aðrir?
Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við tækninni. Þar sem við erum að vinna með lifandi frumur, þá getum við aldrei sagt nákvæmlega fyrir fram hvernig hver og einn bregst við meðferðinni og hversu hratt. Hjá sumum sjáum við árangurinn koma gríðarlega hratt á meðan það getur tekið lengri tíma hjá öðrum.
Ef eitthvað af eftirfarandi á við hjá þér er þér ráðlagt frá því að fara í UltraBody meðferð:
- Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti
- Ef það eru hjartavandamál eða sjúkdómar
- Ef þú ert með ómeðhöndlaðan háan blóðþrýsting
- Krabbamein
- Nýrnaskemmdir, sjúkdómar eða vandamál
- Lifrarskemmdir, sjúkdómar eða vandamál
- Blóðsjúkdómur, áverkar eða blæðing
- Aðskotahlutur úr plasti eða málmi
- Húðsjúkdómar eins og exem, húðbólga eða útbrot
- Gangráður eða annað sambærilegt
- Fyllingarefni eða bótox á meðferðarsvæðinu
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:
Kynntu þér UltraBody meðferðina betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.