SPURNINGAR OG SVÖR

Ég er ekki viss hvaða meðferð eða meðferðarpakki henti mér, er hægt að fá ráðgjöf með valið?
Já við bjóðum uppá mælingu og ráðgjöf þér að kostnaðarlausu en þá fer meðferðaraðili yfir markmiðin þín með þér og ráðleggur þér með meðferðir og prógramm sem hentar þér best.
Bókaðu þér tíma í mælingu og ráðgjöf hér: https://thehouseofbeauty.dsbokun.is/

Fyrir hvern er Fitform Professional?

Fitform hentar einnig mjög vel fyrir fólk með slappa húð sem hefur grennst hratt, konum eftir barnsburð og fólki með bólgusjúkdóma. Fitform Professional hentar sérstaklega vel til að byggja upp magavöðva, lærvöðva og rassvöðva.

Hverjum hentar Laser Lipo meðferðin?
Laser Lipo er fyrir konur jafnt sem karla sem eru almennt við góða heilsu, ekki í mikilli yfirþyngd en vilja vinna á staðbundinni fitu sem fer ekki með hefðbundnu mataræði og æfingum.

Fyrir hverja er Lipomassage Silkligth meðferðin?

Meðferðin er ætluð körlum jafnt sem konum sem hafa appelsínuhúð og/eða eru í vandræðum með viss svæði húðarinnar/líkamans. Meðferð á körlum er aðallega beitt gegn ,,síðuhandföngum" og öðrum erfiðum svæðum. Meðferð á konum beinist hins vegar oftast að aftanverðum lærum, handleggjum og rassi, þó ávalt sé farið yfir allan líkamann í hverri meðferð.

Hvað er VelaShape?

VelaShape II meðferðin samanstendur af Bi-Polar hljóðbylgjum (RF), Infrarauðum ljósgeisla, neikvæðum þrýstingi og rafmagnsnuddi sem dreifir markvisst hita niður í fitulag húðarinnar. Samsetning þessarar orku örvar niðurbrot á fitu, eykur hreinsun í sogæðakerfi líkamans auk þess sem fitufrumur minnka. Árangurinn verður ummálsminnkun á meðferðar svæði, minnkun á appelsínuhúð, húðin verður þéttari, sléttari og útlínu líkamans betur mótaðar.

Hverjar eru reglur með tímabókanir og afbókanir hjá ykkur?
Það eru vinsamleg tilmæli að tímar séu afbókaðir með 12 tíma fyrirvara svo hægt sé að fylla uppí tímann. Ef tími er afbókaður innan 12 tíma dregst hálfur tími af kortinu þínu. Ef tími er ekki afbókaður og ekki er mætt í tímann dregast heill tími af kortinu þínu.
Hverjar eru reglur með endurgreiðslur hjá ykkur?
Hverjar eru reglur með endurgreiðslur hjá ykkur?
Meðferðir eða kort sem versluð eru á tilboðum eru ekki endurgreidd eftir að tilboði lýkur.
Meðferðir eða kort eru eingöngu endurgreidd innan 14 daga frá kaupum hafi það ekki verið keypt á tilboði. Ef byrjað er að nýta kortið á þessum 14 dögum dragast tímarnir frá sem nýttir hafa verið.

Má ég gefa kortið mitt eða lána tíma af því?
Já það er lítið mál að nafnabreyta kortum sé þess óskað eða bjóða öðrum tíma af þínu korti.

Ef að meðferðin sem ég keypti hentar mér ekki en mig langar í aðra meðferð hjá ykkur má ég þá breyta kortinu mínu?
Já við viljum að allir okkar viðskiptavinir séu í meðferðum sem hentar þeim best og stundum eru keyptar meðferðir sem henta svo ekki viðkomandi. Þá er lítið mál að breyta kortinu í aðra meðferð og er þá reiknaða út hve margir tímar í nýju meðferðina þú færð fyrir sömu upphæð og þú verslaðir fyrra kortið. Þeir tímar sem nýttir hafa verið dragast frá upphæðinni sem fer uppí nýar meðferðir.

Hvaða greiðslumöguleika bjóðið þið uppá?
Möguleiki að greiða með öllum helstu kortum og netgíró ef keyptar eru meðferðir hér á netversluninni en einnig bjóðum við uppá raðgreiðslur á kreditkort og kortalaus lán með Netgíró og Pei hjá okkur á staðnum.

Hvernig er opnunartíminn hjá ykkur?
Við höfum ekki auglýstan opnunartíma heldur fer það eftir bókunum og meðferðaraðilum en algengt er að það sé hægt að bóka tíma frá 8 á morgnana til 22 á kvöldin á virkum dögum og frá 9-16 um helgar.