„Í ágúst s.l. heyrði ég af silkinu (Lipomassage Silkligth) hjá The House of Beauty að meðferðin gæti aðstoðað við verki og losað um bólgur og bjúg því ég var sárkvalin alla daga útaf gigt og Lúpus. Ég var á sterkum lyfjum sem heita Gabapentin dagsdagslega til að meika daginn.
Ég fór upphaflega í silkið 1x í viku og fann strax hvað það gerði mér gott. Bjúgurinn og bólgurnar minnkuðu og verkirnir fóru smám saman að hverfa. Ég jók þá silkið uppí 2x-3x í viku og þá fór mér að líða miklu betur. Ég gat svo hætt á lyfjunum sem ég hafði áður ekki getað farið í gegnum daginn án í september rúmum mánuði eftir að ég byrjaði í silkinu. Í dag fer ég í silkið 1x í viku til að halda mér góðri.
Á svipuðum tíma byrjaði ég að taka gosið út og drekka meira vatn. Svo fór ég útí að minnka hveiti og fór sem dæmi að borða kornabrauð án hveitis. Ég reyni líka að sleppa því að borða eftir kl 21 á kvöldin.
Í nóvember bætti ég svo við mig öðrum meðferðum hjá The House of Beauty. Fyrst fór ég Totally Laser Lipo til að grenna mig, maður finnur mjög fljótt hvernig ummálið minkar og buxurnar verða víðari í Lasernum. Eins bætti ég við Velashape meðferðinni og fór að blanda meðferðunum saman í hverri viku og þá fóru hlutirnir að gerast hratt. Núna 6 mánuðum eftir að ég byrjaði í meðferðum hjá The House of Beauty er ég búin að missa 23 kg, líkaminn búin að mótast og húðin orðin stinn og slétt. Mér líður miklu betur, heilsan er allt önnur og sjálfstraustið hefur aukist til muna. Ég gæti ekki verið ánægðri með meðferðirnar hjá The House of Beauty því þær hafa hreinlega bjargað mér.“ - Sigríður Lilja Samúelsdóttir
____________________________________________________
" OMG ég fór í undratækið Totally Laser Lipo hjá The House of Beauty í hádeginu og það voru bókstaflega bræddir af mér 14 cm af maganum. Ég er orðlaus og gallabuxurnar orðnar hólkvíðar eftir eitt skipti." - Selma Ragnars
____________________________________________________
" Ég byrjaði í meðferðum hjá The House of Beauty í janúar 2019 og er hvergi nærri hætt. Ég var nýlega búin að taka ,,fyrir" myndirnar, því ég hafði veika von um að ,,næsta átak" myndi skila einhverjum árangri. Hafði heyrt af Lipomassage ,,silk" hjá vinkonum sem hafa stundað það lengi.
Var alls ekki hrifin af einhverjum skyndilausnum... sem ég hélt að væru í boði hjá THOB.
Hvað ég var fávís!Á móti mér tóku yndislegar konur. Eftir að hafa prófað ,,silkið" tvisvar, varð ég forvitin um hinar meðferðirnar; velashape, laserlipo og fitform er það sem ég hef prófað.
Það eru 10 ár síðan ég var greind með vefjagigt. Hreyfing og rétt mataræði eru helstu ráðin til að ná bata við henni. Það er þó flókið að stunda hreyfingu þegar líkaminn er undirlagður af verkjum. Þau er kraftaverki líkast, áhrifin eftir ,,silk". Jafnast á við marga tíma af nuddi og húðin verður þar að auki silkimjúk og slétt.
Vegna góðra áhrifa af silkmeðferðinni, fór ég að mæta sífellt oftar í ræktina. Ég gat það, því verkirnir voru orðnir svo miklu minni.
Fljótlega skipti ég um mataræði. m.a. fékk ég hjálp við það hjá starfsfólki. Það að ég hef haldið mig við það má þakka stelpunum hjá THOB. Þeirra mildilega hvatning og stuðningur höfðu allt að segja. Ég er oftast með ræktarfötin í bílnum og plana ræktina í kringum tímana. Ég drekk miklu meira vatn í dag. Það lærði ég einnig hér.
Að auki fór ég í svuntuaðgerð fyrir nokkrum árum hjá lýtalækni. Eftir sátu ljót ör á mjöðmum með með fitukeppum þar fyrir ofan. Ég átti pantaða aðgerð þar sem laga átti örið og fitusjúga af mjaðmakömbum. Þegar ég mætti til læknisins í viðtal fyrir aðgerð kom í ljós að aðgerðin var óþörf.
Stelpunum í THOB hafði tekist að laga þetta án nokkurrar aðgerðar eða inngrips! Aðgerðin var því afpöntuð!
Ef fólk aðeins vissi um örlítið brot af því sem stofan getur hjálpað þér með.... Það er einnig tilhlökkun að koma inn í yndislegt andúmsloftið, þar sem allar konurnar taka vel á móti þér með nærgætni, hvatningu og hrósi.Niðurstaða mín er sú að:
Núna er ég búin að taka af mér rúm 18 kg og eru fuuuullt af cm farnir. Líkamsformið og líðanin hefur líka breyst ótrúlega mikið."
Nafnlaust - Þessi elska sem sendi okkur þessi fallegu orð kaus að láta nafn síns ekki getið og við virðum það að sjálfsögðu en gátum ekki sleppt því að deila þessum orðum með ykkur.
_________________________________________________" I started my treatments in The House of Beauty by doing 4 sessions in Laser Lipo and I lost 5 kg with these 4 sessions. Now I’m doing Velashape and Lipomassage Silkligth and I’ve already lost 3kg more in 5 sessions, I still have 4 more sessions and I need to loose 2 more kgs that I plan on doing in these sessions.
I’ve also seen very good results on my skin. The cellulite is almost gone and my skin is much tigther and smoother.The treatments in The House of Beauty clearly work." - Ohana Pinheiro
__________________________________________________" Ég hef verið í meðferðum í The House of Beauty; það er óhætt að segja að ég sé ánægð með árangurinn! Hefði aldrei trúað því; en ég er búin að taka nokkur skipti í Vela Shape og Lipomassage Silkligth og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Fullt af sentimetum farnir og sérstaklega á þeim svæðum sem hefur verið erfitt að ná af. Húðin er silkimjúk, hefur dregist vel saman og meira að segja slitin hafa dofnað. Svo líður manni svo vel á eftir Silkið, verður alveg endurýjaður. Hef einnig prófað Lipo laser og fitorm og þetta vinnur allt afskaplega vel saman.... Mæli eindregið með þessu til að koma sér í form." - Stína
_________________________________________________" Prófaði lipo massage og fílaði mig mjög, mæli með þessari meðferð fyrir þær sem eru með mikið af bólgum í bandvef sem veldur appelsínuhúð. Appelsínuhúð er ekki bara á leggjunum hún getur verið út um allt, getur einnig valdið óþolandi fellingum sem er erfitt að losna við. Allur líkaminn var tekinn og fann ég fyrir mikilli afslöppun þegar ég kom heim. KEM bókað AFTUR! Jafnvel sendi kallinn í þetta líka því þetta er ekki bara fyrir konur ;) " - Pálína Páls
_________________________________________________" Ég elska að koma í dekur hjá The house of beauty. Alltaf tekið svo vel á móti manni og mér finnst vela shape og silk light vera ómissandi í að styrkja og stinna húðina og kroppinn! Ég mæli innilega með! " - Þórunn Antonía
________________________________________________" Frábær stofa í alla staði. Starfsfólkið er yndislegt og andrúmsloftið hlýlegt. Meðferðirnar eru að gera kraftaverk fyrir mig. Gæti varla mælt meira með !" - Mirra Sjöfn