Nánari lýsing
Totally Laser Lipo er frá Bretlandi og er með öflugri Laser Lipo tækjum í dag en hver meðferð tekur eingöngu 20 mínútur. Meðferðin hjálpar fitufrumunni að losa út fitu með laser. Í meðferðinni eru notaðar kaldar laser blöðkur sem leysa upp fitu í fitufrumunum sem losnar svo út með hefðbundnum hætti í gegnum sogæðakerfið.
Þú einfaldlega liggur með laser blöðkur á þér í 20 mínútur án þess að finna fyrir neinu nema mögulega örlitlum hita á meðan laserinn sér um vinnuna. Eftir meðferðina er mælt með 20 mín brennslu æfingu til að hámarka árangur og aðstoða líkamann við að losa fituna sem var verið að losa úr fitufrumunum út.
Ummálsmælt er fyrir og eftir hverja meðferð í Totally Lipo Lasernum.
Hvaða svæði er LASER LIPO notað á?
- Mitti
- Maga
- Mjaðmir
- Undir höku
- Brjóst á karlmönnum
- Læri
- Kálfar
- Rass
- Hendur
- Þríhöfði (bingo)
Í Laser Lipo tækninni eru notaðar kaldar laser blöðkur sem er raðað á svæðið sem á að meðhöndla. Upphaflega voru þessi tæki þróuð til að hraða gróanda, en tóku læknar þá eftir því að þessi tækni væri einnig að leysa upp fitu í fitufrumunum án sársauka og inngripa. Ólíkt hefðbundnu fitusogi þá tekur Laser Lipo ekki fitufrumurnar heldur leysir upp fituna í þeim og þar af leiðandi minnka þær.
Fitan sem er leyst upp í meðferðinni losast svo út með eðlilegum hætti í gegnum sogæðakerfi líkamanns. En til að hraða því ferli er mælt með 20 mínútna brennslu æfingu eftir meðferð. Laser Lipo virkar þannig að kaldar rauðar laser blöðkur triggera frumurnar til að brjóta niður og losa fituna úr fitufrumunum. Meðferðin er örugg, sársaukalaus og án allra inngripa.
Tíminn er 20 mínútur
Fyrir góðan árangur er mælt með tveimur meðferðum í viku, í 8 vikur, sumir þurfa meira og aðrir minna. Það er persónubundið.
Möguleiki að greiða með öllum kortum, og fá kortalaus lán með netgíró og Pei hér á vefversluninni og hjá okkur á stofunni í Fákafeni 9 en einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Þegar þú hefur keypt þér meðferðarpakka í fyrsta skipti þá skaltu byrja á því að bóka þig í mælingu og ráðgjöf þar sem meðferðaraðili fer yfir markmiðin þín með þér og setur pakkann upp með þér.
Þú bókar þér tíma á vefnum okkar hér
Hlökkum til að sjá þig!
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.