12.900 kr
Totally Laser Lipo
Við kynnum með miklu stolti í allra fyrsta sinn Totally Laser Lipo.
Totally Laser Lipo frá Bretlandi er með nýrri og öflugri Laser Lipo tækjum í dag en hver meðferð tekur eingöngu 20 mínútur. Meðferðin hjálpar fitufrumunni að losa út fitu með laser. Í meðferðinni eru notaðar laser blöðkur sem leysa upp fitu í fitufrumunum og stinna húðina í kring án allra óþæginda.
Þú einfaldlega liggur með laser blöðkur á þér í 20 mínútur án þess að finna fyrir neinu nema mögulega örlitlum hita á meðan laserinn sér um vinnuna. Eftir meðferðina er mælt með 20 mín brennslu æfingu til að hámarka árangur og aðstoða líkamann við að losa fituna sem var verið að losa úr fitufrumunum út.
Ummálsmælt er fyrir og eftir hverja meðferð í Totally Lipo Lasernum.
Tæknin?
Í Laser Lipo tækninni eru notaðar kaldar laser blöðkur sem er raðað á svæðið sem á að meðhöndla. Upphaflega voru þessi tæki þróuð til að hraða gróanda, en tóku læknar þá eftir því að þessi tækni væri einnig að leysa upp fitu í fitufrumunum án sársauka og inngripa. Ólíkt hefðbundnu fitusogi þá tekur Laser Lipo ekki fitufrumurnar heldur leysir upp fituna í þeim og þar af leiðandi minnka þær. Fitan sem er leyst upp í meðferðinni losast svo út með eðlilegum hætti í gegnum sogæðakerfi líkamanns. En til að hraða því ferli er mælt með 20 mínútna brennslu æfingu eftir meðferð. Laser Lipo virkar þannig að kaldar rauðar laser blöðkur triggera frumurnar til að brjóta niður og losa fituna úr fitufrumunum. Meðferðin er örugg, sársaukalaus og án allra inngripa.
Hvað er meðferðin löng?
Tíminn er 20 mínútur
Hvað er mælt með mörgum tímum?
Fyrir hámarks árangur er mælt með tveimur meðferðum í viku, í 8 vikur.
Möguleiki að greiða með öllum kortum og netgíró hér á netversluninni og hjá okkur á stofunni í Fákafeni 9 en einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og dreifa greiðslum kortalaust með pei og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið allt að fjögurra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.