VelaShape er ein byggingarkenndasta líkamsmeðferðin sem völ er á í dag.
The House of Beauty líkamsmótunar stofa býður uppá byltingarkennda meðferð við mótun líkamans. VelaShape II meðferðin vinnur á staðbundinni fitu og þéttir húð án þess að um inngrip eins og skurðaðgerð sé að ræða.
Meðferðin sem hlotið hefur samþykki hjá bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) hefur hlotið einróma lof meðferðaraðila og neitenda.
Á þægilegan og öruggan máta tónar meðferðin upp líkamann og þéttir yfirborð húðar á mjög skömmum tíma.
VelaShape II er talin af bandaríska lyfjaeftirlitinu (FDA) ein öruggasta, árangursríkasta og sársaukalausasta meðferðin í dag til að móta líkamann (staðbundin fita).
Klínískar rannsóknir hafa sýnt fram á að 85% svörun er af meðhöndluðum svæðum með VelaShape II.
Á meðferðarsvæðum eins og á lærum og maga hefur orðið allt frá 2-7,2 cm minnkun. Árangur er því vel sjáanlegur eftir aðeins fjórar meðferðir með VelaShape II.
VelaShape II meðferðin hjálpar þér á þægilegan hátt að fá heilbrigðan og fallega mótaðan líkama, auk þess að bæta lífsstíl og gefa betri líðan.
VelaShape II meðferðin samanstendur af Bi-Polar hljóðbylgjum (RF), Infrarauðum ljósgeisla, neikvæðum þrýstingi og rafmagnsnuddi sem dreifir markvisst hita niður í fitulag húðarinnar. Samsetning þessarar orku örvar niðurbrot á fitu, eykur hreinsun í sogæðakerfi líkamans, eykur kollagen og elastin framleiðslu í húð auk þess sem fitufrumur minnka. Árangurinn verður ummálsminnkun á meðferðar svæði, minnkun á appelsínuhúð og misfellum í húð ásamt því að húðin verður þéttari, sléttari og útlínur líkamans betur mótaðar.
Við bjóðum uppá Mystic Tan Brúnkumeðferð sem fram fer í sjálfvirkum brúnkuklefa og er þekktur fyrir að gefa einstaklega fallegan og jafnan lit.
Laus húð og slit eru oft á tíðum erfið viðureignar eftir t.d. barnsburð eða þegar fólk hefur grennst mikið þar kemur LED húðmeðferðin til sögunnar.