Skráðu þig inn á vefverslun
Nýskráning
Tölvupóstur fyrir endurstillingu lykilorðs hefur verið sendur á netfangið sem skráð er fyrir reikninginn þinn, en það getur tekið nokkrar mínútur að birtast í pósthólfinu þínu.
Skráning á þessa síðu gerir þér kleift að fá aðgang að pöntunarstöðu þinni og sögu.
Búðu til reikning Skrá inn á vefverslun
ERTU BÚIN AÐ VERA AÐ SPÁ Í ÞETTA -
EN ERT EKKI VISS UM HVAÐ HENTAR ÞÉR BEST?
Byrjaðu á ráðgjöf.
Sérfræðingur fer yfir markmiðin þín og leggur til meðferðarprógramm út frá þínum þörfum og þeim árangri sem þú vilt ná.
✨ FYRSTA RÁÐGJÖF
BÓKAÐU RÁÐGJAFATÍMA HJÁ SÉRFRÆÐINGUM OKKAR OG FÁÐU FAGLEGA LEIÐSÖGN BYGGÐA Á ÞÍNUM ÞÖRFUM OG MARKMIÐUM.
Í ráðgjöfinni förum við yfir stöðu þína í dag, hlustum á hverju þú leitast eftir og leggjum fram skýra tillögu að meðferðarprógrammi sem getur hjálpað þér að ná raunverulegum árangri - hvort sem markmiðin snúa að heilsu, vellíðan, útliti eða lífstílsbreytingum.
✨ VEFRÁÐGJÖF
SPARAÐU ÞÉR SPORIN, FÁÐU SÉRSNIÐNA RÁÐGJÖF HEIM AÐ DYRUM.
Eftir bókun færð þú tölvupóst með eyðublaði þar sem þú fyllir út upplýsingar um þarfir og markmið sem og heilsufar og hleður upp myndum.
Í öðrum tölvupósti er hlekkur sem þú ferð inn á, á þeim tíma sem þú átt bókað í vefráðgjöf. Þar hittir þú sérfræðing sem fer yfir svörin með þér og leggur fram sérsniðið meðferðarprógram.
✨ SÍMARÁÐGJÖF
ÞESSI TÍMI ER HUGSAÐUR TIL AÐ FÁ AÐSTOÐ VIÐ AÐ BÓKA TÍMA EÐA STUTTA RÁÐGJÖF VARÐANDI MEÐFERÐIR.
Til að geta gefið persónulega ráðgjöf um hvað hentar hverjum og einum er nauðsynlegt að gera það á staðnum eða í vefráðgjöf. Sjá hér til hliðar.
Ráðgjöf kostar 5000kr sem ganga að fullu upp í kaup ef keypt er samdægurs.
Á staðnum bjóðum við uppá að greitt sé með reiðufé, öllum helstu kortum, kortalaus lán hjá Netgíró og Pei og raðgreiðslum á kreditkort. Á vefnum bjóðum við uppá greiðslu með öllum helstu kortum, kortalaus lán hjá Netgíró og Pei.
Að auki bjóðum við uppá vaxtalausar greiðsludreifingar á meðan á meðferðarprógrammi stendur, annaðhvort með mánaðarlegum kröfum í heimabanka eða á kort.
Nei þú þarft þess ekki, þú getur greitt ráðgjafargjaldið og hugsað þig svo um. Öll meðmæli frá sérfræðingi eru skráð í kerfið hjá okkur svo það er auðvelt að taka upp þráðinn þegar þú hefur ákveðið þig.
Já það er hægt innan þriggja mánaða frá kaupum. Þá reiknum við út hve marga tíma í nýju meðferðina þú færð fyrir sömu upphæð og þú greiddir fyrir fyrra kortið. Þeir tímar sem hafa verið nýttir eru dregnir frá upphæðinni.
Við erum ekki með auglýstan opnunartíma heldur fer það eftir bókunum og meðferðaraðilum en algengt er að hægt sé að bóka tíma frá 9-21 á virkum dögum og 9-18 á laugardögum.
Í meðferðinni erum við ekki að fjarlægja fitufrumurnar heldur minnka innihaldið í þeim svo eftir situr lítil og tæmd fitufruma og þar af leiðandi minna ummál, alveg eins og gerist þegar um náttúrulegt fitutap er að ræða. Það fer því aðallega eftir lífstílnum þínum, ef þú heldur heilbrigðum lífstíl og mataræði þá mun árangurinn haldast, ef ekki þá er hætta á að fitufruman fyllist aftur af fitu með tímanum eins og myndir gerast með hefðbundnu fitutapi. Stundum getur verið ráðlagt að koma í eina viðhaldsmeðferð á 2-3 mánaða fresti til að viðhalda árangri.
Fjöldi skipta fer eftir hve miklum árangri þú vilt ná fram og svæðinu sjálfu hjá hverjum og einum, hversu mikið þú þarft til að ná markmiðum þínum. Sérfræðingur fer yfir með þér í ráðgjöf hvað þú þarft mörg skipti. Flestir þurfa 8-12 skipti sem tekin eru á 7-10 daga fresti, svo að tilætluðum árangri sé náð. Ef færri tímar eru teknir í upphafi getur viðkomandi átt von á því að þörf sé á að bæta við fleiri skiptum til að ná tilætluðum árangri og klára þar af leiðandi prógrammið.
Sjáanlegur árangur kemur að öllu jöfnu fram eftir tíma 3-4 í meðferðarprógrammi nú þrátt fyrir að ummálsminnkun á svæðinu megi yfirleitt sjá frá fyrsta tíma.
Húðþétting tekur að öllu jöfnu lengri tíma að fá sjáanlegan árangur heldur en þegar niðurbrot fitu er annarsvegar. Kollagen og elastín framleiðsla húðarinnar hefst um 8 dögum eftir meðferð og heldur virknin svo áfram í 8 vikur eftir meðferð, því er endanlegur árangur meðferðar á húð kominn fram u.þ.b. 2 mánuðum eftir að meðferðarprógrammi lýkur.
Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við tækninni. Þar sem við erum að vinna með lifandi frumur, þá getum við aldrei sagt nákvæmlega fyrir um það hvernig hver og einn bregst við meðferðinni og hversu hratt.
Ástand sogæðakerfis, líkamlegir þættir og lífstíll spila inní árangur.
Hjá The House of Beauty trúum við ekki á að ein tækni eða eitt skref leysi allt. Líkamsmótun án inngripa byggist á því að vinna með fleiri en einn þátt samtímis til að ná sem bestum árangri.
Þetta snýst því ekki aðeins um sentimetra. Sem dæmi getur verið þörf á að vinna með staðbundna fitusöfnun, lausa húð, mótun og sogæðakerfið í einni og sömu meðferðinni til að ná þeirri niðurstöðu sem lagt er upp með.
Þess vegna er hver UltraBody meðferð byggð upp á nokkrum markvissum skrefum sem öll hafa mikilvægt hlutverk í ferlinu. Í stað þess að einblína eingöngu á einn þátt vinnum við með þá lykilþætti sem skipta mestu máli fyrir svæðið og markmiðið.
Skrefin vinna saman og styðja hvert annað til að ná sem bestri niðurstöðu.
Þetta er kjarninn í okkar nálgun: ekki ein leið fyrir alla – heldur markvisst meðferðarferli þar sem hvert skref hefur tilgang.
Nei ef eitthvað af eftirfarandi á við hjá þér er þér ráðlagt frá því að fara í UltraBody meðferð:
Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti
Ef þú ert með hjartavandamál eða -sjúkdóma
Ef þú ert með ómeðhöndlaðan háan blóðþrýsting
Ef þú ert með krabbamein eða í krabbameinsmeðferð
Ef þú ert með nýrnaskemmdir, -sjúkdóma eða - vandamál
Ef þú ert með lifrarskemmdir, -sjúkdóma eða -vandamál
Ef þú ert með blóðsjúkdóm, áverka eða sár
Ef þú ert með aðskotahlut úr plasti eða málmi á meðferðarsvæðinu
Ef þú ert með húðsjúkdóm t.d. exem, húðbólga eða útbrot á meðferðarsvæðinu
Ef þú ert með gangráð eða annað sambærilegt
Ef þú ert með fyllingarefni eða bótox á meðferðarsvæðinu
Ef þú ert með húðflúr sem þekur meiri hluta eða allt meðferðarsvæðið
Silk Lipomassage™, sogæðameðferðin hentar almennt öllum. Ef þú ert með sjúkdóm eða aðskotahlut sem þú telur að gæti haft áhrif á getu þína til þess að fara í Silk Lipomassage™ þá mælum við með að þú ráðfærir þig við þinn lækni.
RÁÐGJÖF
VELDU ÞÁ LEIÐ SEM HENTAR ÞÉR
heilsa & orka eða mótun & húðþétting.
Bætt heilsa & aukin orka eða líkamsmótun & húðþétting.
BÆTT HEILSA & AUKIN ORKA
Ert þú að glíma við verki sem enginn sér?
Við bólgur sem hafa áhrif á daglegt líf?
Við bjúg og hægfara sogæðakerfi?
Fjöldi fólks nýtir sér SILK meðferðina í hverri viku til að bæta lífsgæði og minnka verki, bólgur og bjúg.
SILK Lipomassage vinnur á rót vandans
Örvar sogæðakerfið.
Minnkar bjúg og bólgur.
Losar um stífan bandvef.
Léttir þrýsting í liðum og vöðvum.
Þegar bólgur minnka, bandvefur mýkist og sogæðakerfið styrkist eykst vellíðan og verkjaálagið minnkar.
„Guðsgjöf að rekast á umfjöllun um meðferðina.“
- Stella Björk Halldórsdóttir
Stella er með vefjagigt og hefur glímt við verki frá barnsaldri og með árunum versnaði ástandið svo mikið að hún átti orðið erfitt með að ganga.
→ Síðan prófaði hún Silk.
Í dag segir hún líðan sína gjörbreytta, eftir að tilviljun leiddi hana í Silk meðferð sem hún segir hafa gefið sér nýtt líf.
„Orkan er að koma aftur, ég er farin að vilja fara meira út, hitta fólk og gera eitthvað fyrir mig.
Ég er bara einhvernveginn allt önnur manneskja.”
LÍKAMSMÓTUN & HÚÐÞÉTTING
HVAÐ ER ULTRABODY?
UltraBody er háþróað meðferðarkerfi sem vinnur markvisst á fitu, húð og líkamsmótun.
Una Dóra fór í markvisst UltraBody ferli þar sem prógrammið var sérsniðið að hennar líkama og markmiðum.