Tímamót í sögu The House of Beauty
Eftir 5 ára þróunarvinnu lítur ný kynslóð SILK-tækja dagsins ljós.

Þegar Sigrún Lilja Guðjónsdóttir hóf rekstur The House of Beauty hafði framleiðslu á Silk tækjunum verið hætt. Eftir að hafa prófað önnur sogæða-meðferðartæki sem náðu ekki sama árangri ákvað hún að taka málin í eigin hendur.
Til þess að tryggja framtíð Silk ákvað Sigrún að þróa sitt eigið Silk-tæki og segir að þegar heilsan og líðan skjólstæðinga sé annars vegar komi ekkert annað til greina.
Þróunarvinnan tók rúmlega 5 ár en þar komu við sögu rafvirkjar, verkfræðingar og framleiðendur sem Sigrún vann náið með. Eftir óteljandi sýnishorn, prófanir og endurteknar breytingar á íhlutum og meðferðarhausum og endurhannað ytra byrði er tækið loksins tilbúið í herbergi 7 hjá okkur.
Sigrún hannaði jafnframt útlit og vörumerki sem fékk nafnið SILK Lipomassage™ sem er skráð hjá Hugverkastofu sem formlegur eignarréttur Sigrúnar.

Þetta markar ein stærstu tímamót í sögu The House of Beauty og nýjan kafla í sögu Silk. Meða nýjum SILK 2.0 tækjum erum við að tryggja framtíð meðferðarinnar og getum haldið þróun hennar áfram út frá reynslu og þekkingu. Með tilkomu þessa tækis og þeirrar staðreyndar að hægt verði að framleiða fleiri tæki getum við annað aukinni eftirspurn og hjálpað enn fleirum að bæta heilsu og auka lífsgæði sem var markmiðið frá upphafi.
Lesa allt viðtalið hér
