Skráðu þig inn á vefverslun
Nýskráning
Tölvupóstur fyrir endurstillingu lykilorðs hefur verið sendur á netfangið sem skráð er fyrir reikninginn þinn, en það getur tekið nokkrar mínútur að birtast í pósthólfinu þínu.
Skráning á þessa síðu gerir þér kleift að fá aðgang að pöntunarstöðu þinni og sögu.
Búðu til reikning Skrá inn á vefverslun
LANGAR ÞIG AÐ KANNA HVAÐA MÖGULEIKAR ERU Í BOÐI?
Þú þarft ekki að vita hvaða meðferð þú þarft.
Í Ráðgjafavikunni getur þú hitt sérfræðinga The House of Beauty og fengið persónulega ráðgjöf um hvaða möguleikar gætu hentað þér, þínum líkama og þínum markmiðum.
PERSÓNULEG RÁÐGJÖF
Án skuldbindinga
Kannski ertu að leita að leið til að líða betur í líkamanum, draga úr óþægindum eða kanna hvaða möguleikar gætu hentað þér.
Líkami og útlit
Laus húð · Svunta · Staðbundin fita · Appelsínuhúð · Líkamsmótun
Heilsa og líðan
Verkir · Bjúgur · Bólgur · Stífleiki · Líkamleg vellíðan
Þú þarft ekki að vita hvaða meðferð þú átt að bóka.
Það er einmitt það sem ráðgjöfin er fyrir.
VIÐ BYRJUM Á ÞÉR
Í ráðgjöfinni förum við yfir það sem þú vilt fá aðstoð með, heilsufar, lífsstíl og markmið.
Við skoðum með þér:
• hvað þú vilt fá aðstoð með
• hvað gæti verið raunhæft að vinna með
• hvaða möguleikar gætu hentað þér
• hvernig mögulegt meðferðarprógramm gæti litið út
Það hentar ekki allt öllum.
Markmiðið er að finna út hvað gæti hentað þér.
ERTU AÐ ÍHUGA FITUSOG, SVUNTUAÐGERÐ?
Áður en þú tekur ákvörðun getur verið gagnlegt að kanna hvaða möguleikar eru í boði án skurðaðgerðar.
The House of Beauty sérhæfir sig í líkamsmótun og húðþéttingu án inngripa.
Í ráðgjöfinni skoðum við hvað gæti verið raunhæft að vinna með án aðgerðar – og hvort okkar lausnir henti því sem þú vilt ná fram.
ÞÚ ERT Í GÓÐUM HÖNDUM
8+ ÁR AF REYNSLU
The House of Beauty sérhæfir sig í líkamsmótun, húðþéttingu og heilsueflandi meðferðum án inngripa.
Við leggjum áherslu á fagmennsku, öryggi, heiðarleika og einstaklingsmiðaða nálgun þar sem meðferðaráætlun tekur mið af þínum þörfum og markmiðum.
Að ráðgjöf lokinni veistu betur hvaða möguleikar eru í boði og hvað gæti hentað þér.
Þú ákveður síðan sjálf/ur hvort þú viljir taka næsta skref.
Ráðgjöf kostar 5000kr sem ganga að fullu upp í kaup ef keypt er samdægurs.
Á staðnum bjóðum við uppá að greitt sé með reiðufé, öllum helstu kortum, kortalaus lán hjá Netgíró og Pei og raðgreiðslum á kreditkort. Á vefnum bjóðum við uppá greiðslu með öllum helstu kortum, kortalaus lán hjá Netgíró og Pei.
Að auki bjóðum við uppá vaxtalausar greiðsludreifingar á meðan á meðferðarprógrammi stendur, annaðhvort með mánaðarlegum kröfum í heimabanka eða á kort.
Nei þú þarft þess ekki, þú getur farið heim og hugsað þig um. Öll meðmæli frá sérfræðingi eru skráð í kerfið hjá okkur svo það er auðvelt að taka upp þráðinn þegar þú ert tilbúin.
Já það er hægt innan þriggja mánaða frá kaupum. Þá reiknum við út hve marga tíma í nýju meðferðina þú færð fyrir sömu upphæð og þú greiddir fyrir fyrra kortið. Þeir tímar sem hafa verið nýttir eru dregnir frá upphæðinni.
Við erum ekki með auglýstan opnunartíma heldur fer það eftir bókunum og meðferðaraðilum en algengt er að hægt sé að bóka tíma frá 9-21 á virkum dögum og 9-18 á laugardögum.
Í meðferðinni erum við ekki að fjarlægja fitufrumurnar heldur minnka innihaldið í þeim svo eftir situr lítil og tæmd fitufruma og þar af leiðandi minna ummál, alveg eins og gerist þegar um náttúrulegt fitutap er að ræða. Það fer því aðallega eftir lífstílnum þínum, ef þú heldur heilbrigðum lífstíl og mataræði þá mun árangurinn haldast, ef ekki þá er hætta á að fitufruman fyllist aftur af fitu með tímanum eins og myndir gerast með hefðbundnu fitutapi. Stundum getur verið ráðlagt að koma í eina viðhaldsmeðferð á 2-3 mánaða fresti til að viðhalda árangri.
Fjöldi skipta fer eftir hve miklum árangri þú vilt ná fram og svæðinu sjálfu hjá hverjum og einum, hversu mikið þú þarft til að ná markmiðum þínum. Sérfræðingur fer yfir með þér í ráðgjöf hvað þú þarft mörg skipti. Flestir þurfa 8-12 skipti sem tekin eru á 7-10 daga fresti, svo að tilætluðum árangri sé náð. Ef færri tímar eru teknir í upphafi getur viðkomandi átt von á því að þörf sé á að bæta við fleiri skiptum til að ná tilætluðum árangri og klára þar af leiðandi prógrammið.
Sjáanlegur árangur kemur að öllu jöfnu fram eftir tíma 3-4 í meðferðarprógrammi þrátt fyrir að ummálsminnkun á svæðinu megi yfirleitt sjá frá fyrsta tíma.
Húðþétting tekur að öllu jöfnu lengri tíma að fá sjáanlegan árangur heldur en þegar niðurbrot fitu er annarsvegar. Kollagen og elastín framleiðsla húðarinnar hefst um 8 dögum eftir meðferð og heldur virknin svo áfram í 8 vikur eftir meðferð, því er endanlegur árangur meðferðar á húð kominn fram u.þ.b. 2 mánuðum eftir að meðferðarprógrammi lýkur.
Við erum eins misjöfn og við erum mörg og líkami okkar bregst mismunandi við tækninni. Þar sem við erum að vinna með lifandi frumur, þá getum við aldrei sagt nákvæmlega fyrir um það hvernig hver og einn bregst við meðferðinni og hversu hratt.
Ástand sogæðakerfis, líkamlegir þættir og lífstíll spila inní árangur.
Hjá The House of Beauty trúum við ekki á að ein tækni eða eitt skref leysi allt. Líkamsmótun án inngripa byggist á því að vinna með fleiri en einn þátt samtímis til að ná sem bestum árangri.
Þetta snýst því ekki aðeins um sentimetra. Sem dæmi getur verið þörf á að vinna með staðbundna fitusöfnun, lausa húð, mótun og sogæðakerfið í einni og sömu meðferðinni til að ná þeirri niðurstöðu sem lagt er upp með.
Þess vegna er hver UltraBody meðferð byggð upp á nokkrum markvissum skrefum sem öll hafa mikilvægt hlutverk í ferlinu. Í stað þess að einblína eingöngu á einn þátt vinnum við með þá lykilþætti sem skipta mestu máli fyrir svæðið og markmiðið.
Skrefin vinna saman og styðja hvert annað til að ná sem bestri niðurstöðu.
Þetta er kjarninn í okkar nálgun: ekki ein leið fyrir alla – heldur markvisst meðferðarferli þar sem hvert skref hefur tilgang.
Nei ef eitthvað af eftirfarandi á við hjá þér er þér ráðlagt frá því að fara í UltraBody meðferð:
Ef þú ert þunguð eða með barn á brjósti
Ef þú ert með hjartavandamál eða -sjúkdóma
Ef þú ert með ómeðhöndlaðan háan blóðþrýsting
Ef þú ert með krabbamein eða í krabbameinsmeðferð
Ef þú ert með nýrnaskemmdir, -sjúkdóma eða - vandamál
Ef þú ert með lifrarskemmdir, -sjúkdóma eða -vandamál
Ef þú ert með blóðsjúkdóm, áverka eða sár
Ef þú ert með aðskotahlut úr plasti eða málmi á meðferðarsvæðinu
Ef þú ert með húðsjúkdóm t.d. exem, húðbólga eða útbrot á meðferðarsvæðinu
Ef þú ert með gangráð eða annað sambærilegt
Ef þú ert með fyllingarefni eða bótox á meðferðarsvæðinu
Ef þú ert með húðflúr sem þekur meiri hluta eða allt meðferðarsvæðið
Silk Lipomassage™, sogæðameðferðin hentar almennt öllum. Ef þú ert með sjúkdóm eða aðskotahlut sem þú telur að gæti haft áhrif á getu þína til þess að fara í Silk Lipomassage™ þá mælum við með að þú ráðfærir þig við þinn lækni.
VELDU ÞÁ LEIÐ SEM HENTAR ÞÉR BEST
heilsa & orka eða mótun & húðþétting.
Bætt heilsa & aukin orka eða líkamsmótun & húðþétting.
LÍKAMSMÓTUN & HÚÐÞÉTTING
HVAÐ ER ULTRABODY?
UltraBody er háþróað meðferðarkerfi sem vinnur markvisst á fitu, húð og líkamsmótun.
Una Dóra fór í markvisst UltraBody ferli þar sem prógrammið
var sérsniðið að hennar líkama og markmiðum.
Veldu þann tíma sem hentar þér hér fyrir neðan.
8+ ára reynsla · 50.000+ meðferðir · Margverðlaunuð heilsu- og líkamsklíník
BÆTT HEILSA & AUKIN ORKA
Ert þú að glíma við verki sem enginn sér?
Við bólgur sem hafa áhrif á daglegt líf?
Við bjúg og hægfara sogæðakerfi?
Fjöldi fólks nýtir sér SILK meðferðina í hverri viku til að bæta lífsgæði og minnka verki, bólgur og bjúg.
SILK Lipomassage vinnur á rót vandans
• Örvar sogæðakerfið.
• Minnkar bjúg og bólgur.
• Losar um stífan bandvef.
• Léttir þrýsting í liðum og vöðvum.
Þegar bólgur minnka, bandvefur mýkist og sogæðakerfið styrkist
eykst vellíðan og verkjaálagið minnkar.
„Guðsgjöf að rekast á umfjöllun um meðferðina.“
- Stella Björk Halldórsdóttir
Stella er með vefjagigt og hefur glímt við verki frá barnsaldri og með árunum versnaði ástandið svo mikið að hún átti orðið erfitt með að ganga.
→ Síðan prófaði hún Silk.
Í dag segir hún líðan sína gjörbreytta, eftir að tilviljun leiddi hana í Silk meðferð sem hún segir hafa gefið sér nýtt líf.
„Orkan er að koma aftur, ég er farin að vilja fara meira út, hitta fólk og gera eitthvað fyrir mig.
Ég er bara einhvernveginn allt önnur manneskja.”
Veldu þann tíma sem hentar þér hér fyrir neðan.
8+ ára reynsla · 50.000+ meðferðir · Margverðlaunuð heilsu- og líkamsklíník