“Silk er orðið hluti af því að halda líkamanum í jafnvægi”

Flóra Guðlaugsdóttir glímdi í mörg ár við óútskýrða verki en fann enga orsök. Allar rannsóknir skiluðu eðlilegum niðurstöðum og ábendingar lækna oftar en ekki þær að harka af sér og taka verkjalyf.
Í leit sinni af verkjastillingu prófaði Flóra Silk Lipomassage hjá okkur hjá The House of Beauty og fór að finna betri líðan í líkamanum. Hún var að leita af einhverju sem hún gæti gert fyrir sjálfa sig og eftir ráðgjöf keypti hún 20 skipta kort í Silk.
Eftir fyrsta tímann var hún gjörsamlega búin á því og gat ekki beðið eftir að fara að sofa. Henni leið eins og meðferðin hefði hreyft við einhverju djúpt í kerfinu. Eftir 3-4 tíma fór hún að finna fyrir breytingu - meiri orku og léttleika sem og minni verki.

Eftir því sem tíminn leið fór Flóra að upplifa sjálfsefa og velta fyrir sér hvort verkirnir væru ímyndun. En loksins kom skýringin, Flóra var greind með vefjagigt, við greiningu fór hún að skilja líkama sinn betur.
Þegar vefjagigtargreiningin var komin í hús fór Flóra að hugsa til baka og mundi þá hvað henni leið vel, andlega og líkamlega, eftir Silk sogæðameðferðina og áttaði sig á því hvað hún hafði breytt miklu fyrir hana.
Í dag er tími í Silk eitthvað sem Flóra gerir fyrir sjálfa sig. Hún upplifir að með því að koma í Silk reglulega séu verkirnir og bólgur í líkamanum minni, hún safnar ekki eins miklum bjúg og upplifir sig léttari í eigin líkama. Eins segir hún svefninn betri, minni stífleiki í liðum, úthaldstankurinn er orðinn stærri og einfaldlega auðveldara að gera hlutina.

,,Við eigum ekki bara að lifa fyrir alla aðra. Við eigum líka að leyfa okkur að anda djúpt og lifa okkar besta lífi. Ég er loksins farin að leyfa mér það. Svo ég anda og fer í SILK fyrir mig.”
Lesa allt viðtalið hér
