Nánari lýsing
UltraBody Tummy Lift – Náttúruleg lausn við svuntu
Í Svuntumeðferðinni (Tummy Lift) vinnum við markvisst á lausri og slappri húð á öllu kviðsvæðinu. Meðferðin styrkir vefi, minnkar húðslit og gerir húðina sjáanlega þéttari, stinnari og fallegri, án skurðaðgerðar, án nála og án óþæginda.
Hvað gerir UltraBody Tummy Lift (Svuntumeðferð)?
Hvað gerir UltraBody Tummy Lift (Svuntumeðferð)?
• Þéttir og styrkir lausa og slappa húð
• Lyftir kviðsvæðinu og vinnur á svokallaðri „svuntu“
• Bætir húðáferð og dregur úr húðslitum
• Örvar kollagen- og elastínframleiðslu
• Bætir blóðflæði, efnaskipti og sogæðaflæði
Fullkomið fyrir þá sem eru með lausa húð eftir meðgöngu, þyngdartap eða vilja einfaldlega styrkja kviðsvæðið á náttúrulegan hátt.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
Uppbygging á UltraBody Tummy Lift (Svuntumeðferð)
Þú færð sjáanlega stinnari og þéttari húð með sérhæfðri 3 þrepa meðferð sem styrkir húð á kvið. Þetta háþróaða ferli er hannað til að endurnýja, tóna, styrkja og lyfta húðinni á kviðsvæðinu án allra óþæginda.
Skref 1 - Húðþétting: Í fyrsta skrefinu notum við öflugar útvarpsbylgjur (RF) sem hita húðina á nákvæman og stjórnaðan máta, allt frá ystu húðlögum og niður í þau dýpstu. Þetta virkjar náttúrulegt viðgerðarferli húðarinnar og styrkir vefina í mörgum lögum samtímis.
Þetta ferli:
→ örvar framleiðslu á kollageni og elastíni
→ eykur teygjanleika, styrk og stinnleika húðar
→ dregur úr húðslitum
→ minnkar slappa húð og svokallaða „svuntu“
Meðferðin skapar svokallaðan „staðbundinn bruna“ (án óþæginda), sem hvetur líkamann til að margfalda kollagenframleiðslu og flýta endurnýjuninni.
Niðurstaðan er sléttari, stinnari og þéttari húð.
Skref 2 - sogæðavirkjun: Í þessu skrefi er beitt mildum neikvæðum þrýstingi sem örvar sogæðakerfið, losar um eiturefni og dregur úr bólgum. Þetta skref fíneserar húðina, bætir blóðflæði og sogæðaflæði og flýtir þannig fyrir ferlinu við að styrkja og þétta húðina.
Skref 3 - húðþéttingarserum með virtual mesotherapy: Að lokum er öflugu húðstyrkjandi serumi þrýst inn í dýpri húðlögin með nýstárlegri meðferðartækni sem nefnist "Virtual Mesotherapy".
Ný kynslóð stungulausra mesómeðferða.
Um er að ræða hátæknilega, stungulausa tækni sem opnar tímabundnar ör-rásir í húðfrumum og gerir virkum efnum kleift að fara dýpra inn í vefi, eitthvað sem hingað til hefur aðeins verið mögulegt með nálum. Þannig komast virku efnin í öfluga UltraTight seruminu mun dýpra inn í húðlögin en hefðbundnar húðvörur og fara beint inn í frumurnar fyrir mun öflugri og markvissari áhrif.
Þetta lokaskref fullkomnar og hámarkar árangurinn.
Heildartími meðferðar er 60 mínútur.
Mælt er með því að taka 8-12 vikna prógramm til að ná tilskyldum árangri.
Ultra Body CONTOUR tæknin er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:


Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
