Nánari lýsing
Í Arm Lift meðferðinni þéttum við lausa og slappa húð á handleggjum.
Mini útgáfan af meðferðinni er sérsniðin fyrir minni meðferðarsvæði, sem gerir meðferðartímann styttri en í hefðbundinni meðferð. Því nær yfirferðin í tímanum yfir minna svæði. Hún hentar vel þegar vandamálið er afmarkað á litlu svæði, en markmiðið er samt sem áður að hámarka árangur.
Hin háþróaða ARM Lift meðferð sem er öflugri en nokkru sinni fyrr, er sérstaklega hönnuð til að þétta og stinna húðina á upphandleggjum. Þessi öfluga 4 þrepa meðferð miðar að því að þétta lausa húð, auka teygjanleika og stinnleika fyrir vel mótaða upphandleggi. Með þessari nýju tækni bætum við áferð húðarinnar og styðjum við öfluga lyftingu upphandleggja án skurðaðgerðar.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Arm Lift
Skref 1: Meðferðin hefst með LED-ljósameðferð til að örva kollagenframleiðslu og bæta teygjanleika húðarinnar. Þetta mjúka, róandi skref undirbýr húðina með því að styrkja hana og skapa þannig grunn fyrir dýpri virkni.
Skref 2: Næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög til að örva húðstyrkingu og stinnleika. Með því að hita húðina með þessum hætti myndast svokallaður staðbundinn bruni en án óþæginda, sem hvetur líkamann til að margfalda kollagen- og elastínframleiðslu á meðferðarsvæðinu, ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er þéttari og stinnari húð og minni appelsínuhúð.
Skref 3: Í þessu skrefi er beitt mildum neikvæðum þrýstingi sem örvar sogæðakerfið, losar um eiturefni og dregur úr bólgum. Þetta skref fíneserar húðina, bætir blóðflæði og sogæðaflæði og flýtir þannig fyrir ferlinu við að styrkja húðina.
Skref 4: Að lokum er öflugu húðstyrkjandi serumi þrýst inn í dýpri húðlögin með nýstárlegri meðferðartækni sem nefnist "Virtual Mesotherapy eða Virtual Needle". Þetta ferli eykur frásog húðarinnar, opnar húðfrumurnar í dýpri lögum og gerir virkum efnum þannig kleift að komast inn í frumurnar án þess að nota sársaukafullar nálar.
Heildartími meðferðar er 35 mínútur.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:

Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
