Nánari lýsing
Í Kjálkalínumótun (Double Chin) meðferðinni vinnum við á fitusöfnun á undirhöku ásamt því að við þéttum lausa og slappa húð til að minnka undirhökuna ennþá frekar og gera kjákalínuna sjáanlegri.
Nú geturðu þétt lausa húð, losað þig við staðbundna fitu, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Double Chin - skref fyrir skref:
Skref 1 - Fituniðurbrot: Kaldar laser blöðkur undirbúa fitufrumurnar á svæðinu þar sem fita hefur safnast með mildri Laser Lipo tækni. Þetta sértæka skref örvar fitufrumurnar og breytir eiginleikum himnu fitufrumanna til að hefja ferlið og minnka fitusöfnun á hökusvæðinu.
Skref 2 - Húðþétting: Útvarpsbylgjur (RF) framkalla sértækan hita niður í dýpri húðlög til að stuðla bæði að fituniðurbroti og húðþéttingu á svæðinu. Þessi áhrifaríka leið brýtur niður fitu og örvar framleiðslu á kollageni og elastíni til að styðja við endurnýjun frumna. Niðurstaðan er sléttari og stinnari húð, sem mótar kjálkalínuna betur.
Skref 3 - sogæðavirkjun: Í þessu skrefi notum við neikvæðan þrýsting til að losa um eiturefni , vökvasöfnun og óæskilega fitu undir hökunni. Þetta ferli eykur blóðflæði og sogæðaflæði og styrkir náttúrulega getu líkamans til að fjarlægja fitu á skilvirkan hátt. Með því að styðja við náttúrulega afeitrun hámarkar meðferðin áhrifin og hraðar ferlinu og árangri.
Skref 4 - húðþéttingarserum með virtual mesotherapy: Ný kynslóð stungulausra mesómeðferða.
Um er að ræða hátæknilega, stungulausa tækni sem opnar tímabundnar ör-rásir í húðfrumum og gerir virkum efnum kleift að fara dýpra inn í vefi, eitthvað sem hingað til hefur aðeins verið mögulegt með nálum. Þannig komast virku efnin í öfluga UltraTight seruminu mun dýpra inn í húðlögin en hefðbundnar húðvörur og fara beint inn í frumurnar fyrir mun öflugri og markvissari áhrif.
Þetta lokaskref fullkomnar og bætir árangurinn af meðferðinni.
Heildartími meðferðar: 60 mínútur.
Bókaðu þér tíma í fría ráðgjöf hér þar sem við greinum þínar þarfir og finnum lausnina sem hentar þér best – án skuldbindinga.
Hér má sjá fyrir og eftir Double Chin meðferð hjá okkar viðskiptavini:



Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Ábyrgð á Árangri
Með því að kaupa 12 skipti af UltraBody Sculpt meðferð eða 10 vikna Reset and Transformation prógram getur þú átt möguleika á að fá ábyrgð á þínum árangri, sjá hér.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:


Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
