Nánari lýsing
UltraBody Tummy Sculpt – Fitulosun á kvið
UltraBody Tummy Sculpt er háþróuð og margþrepa líkamsmótunarmeðferð sem sameinar fitulosun, húðþéttingu og örvun sogæðakerfisins til að skila sjáanlegum og mælanlegum árangri á kvið- og mittissvæði.
Meðferðin vinnur markvisst á þrálátri kviðfitu, þéttir lausa og slappa húð, bætir áferð og lit húðar, dregur úr húðslitum og mótar mittislínuna allt á öruggan og sársaukalausan hátt.
Fullkomin lausn fyrir þá sem vilja:
• minnka fitu á kvið
• móta mittið
• styrkja og þétta húðina á kvið
• minnka húðslit og "svuntu"
• bæta áferð og lit húðar
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
Tummy Sculpt – skref fyrir skref
Tunmy Sculpt - skref fyrir skref:
Skref 1 – Niðurbrot fitu
Við beitum öflugum hljóðbylgjum sem fara djúpt inn í fitulagið og brjóta niður fitu inni í fitufrumunum.
Fitan umbreytist í vökva sem líkaminn getur síðan losað sig við í gegnum sogæðakerfið.
Skref 2 – Frekari fitulosun með Laser Lipo
Kaldar Laser Lipo blöðkur virkja, losa og draga út fitu sem situr eftir í fitufrumunum, til að hámarka fitulosunarferlið sem hófst í skrefi 1.
Þetta skref styrkir ummálsminnkun og heildarfitulosun.
Skref 3 – Húðþétting og styrking
Við beitum markvissum hitabylgjum sem framkalla svokölluð staðbundin „brunaáhrif“ (án óþæginda).
Þetta örvar húðina til að:
→ margfalda kollagenframleiðslu
→ auka elastínframleiðslu
→ þétta og styrkja húðina
→ draga úr húðslitum og minnka svuntu
→ bæta yfirborðsáferð húðar
Niðurstaðan: sléttari, þéttari og stinnari húð á kviðsvæðinu.
Skref 4 – Örvun sogæðakerfisins
Meðferðinni lýkur á sogæðanuddi með mildum neikvæðum þrýstingi sem eykur:
→ blóðflæði
→ sogæðaflæði
→ náttúrulega fitulosun líkamans
Þetta hjálpar líkamanum að losa sig hratt og vel við fituna sem við brutum niður í meðferðinni sem skilar hraðari og meiri árangri.
Heildartími meðferðar er 60 mínútur.
Viltu vita hvort Tummy Sculpt hentar þér?
Bókaðu þér tíma í fría ráðgjöf án allra skuldbindinga hjá sérfræðingi hér
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Ábyrgð á Árangri
Með því að kaupa 12 skipti af UltraBody Sculpt meðferð eða 10 vikna Reset and Transformation prógram getur þú átt möguleika á að fá ábyrgð á þínum árangri, sjá hér.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:

Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.


