Nánari lýsing
Í Thigh Sculpt meðferðinni vinnum við á fitusöfnun á lærum ásamt því að við þéttum lausa og slappa húð á svæðinu og brjótum niður appelsínuhúð.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Thigh Sculpt
Thigh Sculpt er fullkomin lausn fyrir mótaðri, stinnari og þéttari læri!
Skref 1: Fyrst förum við með öflugar hljóðbylgjur djúpt inn í fitulögin til að brjóta niður fitu í fitufrumunum – allt án nokkurra óþæginda. Með því að nota hljóðpúlsa umbreytist fitan í fljótandi þríglýseríð sem lekur svo út úr fitufrumunum þannig að eftir verður tóm fitufruma sem má helst líkja við rúsinu.
Skref 2: Næst beitum við mildri Laser Lipo tækni. Þetta skref örvar fitufrumurnar og breytir eiginleikum himnu fitufrumunnar.
Skref 3: Því næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög til að stuðla að húðstyrkingu og stinnleika. Þessi milda en áhrifaríka upphitun örvar líkamann til að auka framleiðslu á kollageni og elastíni ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er sléttari og stinnari húð með minni appelsínuhúð.
Skref 4: Í lokaþrepinu beitum við neikvæðan þrýsting með sérstöku ferli fyrir appelsínuhúð til að örva sogæðaflæði og auka blóðflæði, sem hjálpar til við að losa um fasíur, bólgur og stíflur. Þetta öfluga skref bætir áferð appelsínuhúðar og eykur sogæðaflæði, sem hraðar náttúrulegri getu líkamans til að losa út eiturefni og óæskilega fitu. Með því að styðja við þessa náttúrulegu losun eflum við virkni meðferðarinnar og styðjum við ferli líkamans til ná fram hraðari árangri.
Heildartími meðferðar er 60 mínútur.
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Ábyrgð á Árangri
Með því að kaupa 12 skipti af UltraBody Sculpt meðferð eða 10 vikna Reset and Transformation prógram getur þú átt möguleika á að fá ábyrgð á þínum árangri, sjá hér.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:



Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
