Nánari lýsing
Í Total Back Sculpt meðferðinni vinnum við á fitusöfnun og lausri húð bæði á efra baki (bra rolls) brjóstarhaldarasvæðið og ástarhöldunum (muffin top), við brjótum niður fitu ásamt því að við þéttum og stinnum slappa húð á svæðinu og örvum sogæðakerfið til að vinna hraðar.
Nú geturðu þétt lausa húð, losað þig við staðbundna fitu, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Total Back Sculpt
Meðferðin er sérstaklega hönnuð til að vinna á fitusöfnun á efra bakinu sem safnast gjarnan í kringum brjóstahaldarasvæðið ásamt neðra baki eða svokölluðum ástarhöldum. Með háþróaðri tækni til að vinna á fitusöfnun og þétta slappa húð dregur meðferðin úr þrálátri fitusöfnun og styrkir lausa húð á baksvæðinu öllu.
Skref 1: Fyrst förum við með öflugar hljóðbylgjur djúpt inn í fitulögin á neðra bakinu til að brjóta niður fitu í fitufrumunum – allt án nokkurra óþæginda. Með því að nota hljóðpúlsa umbreytist fitan í fljótandi þríglýseríð sem lekur svo út úr fitufrumunum þannig að eftir verður tóm fitufruma sem má helst líkja við rúsinu.
Skref 1: Næst notum við milda Laser Lipo tækni sem beint er að brjóstahaldara svæðinu og ástarhöldum sérstaklega. Þetta skref örvar fitufrumurnar og breytir eiginleikum himnu fitufrumanna til að hefja ferlið.
Skref 3: Næst beitum við sértækum hita á dýpri húðlög til að stuðla að bæði niðurbroti á fitu og húðstyrkingu á svæðinu með áherslu á að minnka fellingar á bakinu öllu. Þessi milda en áhrifaríka upphitun brýtur niður fitu úr fitufrumunum á efra baki og örvar framleiðslu á kollageni og elastíni á öllu bakinu til að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er sléttari, stinnari húð með minni fellingum og vel mótað bak.
Skref 4: Í þessu skrefi notum við neikvæðan þrýsting til að losa um eiturefni og óæskilega fitu á baksvæðinu öllu. Þetta ferli eykur sogæða- og blóðflæðið, sem hraðar náttúrulegri getu líkamans til að fjarlægja fituna sem við brutum niður út úr líkamanum á skilvirkan hátt. Með því að styðja við þessa náttúrulegu losun eflum við virkni meðferðarinnar og styðjum við ferli líkamans til ná fram hraðari árangri.
Skref 5: Þá setjum við öflugt húðstyrkjandi serum í dýpri húðlög á brjóstarhaldarasvæðinu með háþróaðri meðferðartækni sem nefnist Virtual Mesotherapy, einnig þekkt sem sýndarnálarmeðferð. Þessi nálalausa aðferð skilar seruminu á áhrifaríkan hátt inní dýpstu lög húðarinnar, eykur stinnleika og sléttir húðina enn frekar á efra bakinu.
Skref 6: Að lokum berum við á fituleysandi serum á brjóstahaldarasvæðið til að minnka enn frekar þráláta fitusöfnun. Þetta lokaskref fullkomnar árangurinn.
Meðferðartími: 90 mínútur
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Ábyrgð á Árangri
Með því að kaupa 12 skipti af UltraBody Sculpt meðferð eða 10 vikna Reset and Transformation prógram getur þú átt möguleika á að fá ábyrgð á þínum árangri, sjá hér.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:



Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
