Nánari lýsing
Í Upper Back Lift meðferðinni vinnum við á lausri húð á efra baki (bra rolls) brjóstarhaldarasvæðið, við þéttum og stinnum slappa húð á svæðinu og örvum sogæðakerfið til að vinna hraðar. Niðurstaðan er þéttari og stinnari húð á svæðinu og minni misfellur.
Nú geturðu þétt lausa húð, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Upper Back Lift
Meðferðin er sérstaklega hönnuð til að vinna á ójöfnum á efra bakinu sem safnast gjarnan í kringum brjóstahaldarasvæðið. Þú færð sjáanlega stinnari og þéttari húð á brjóstarhaldarasvæðinu með sérhæfðri 4 þrepa meðferð sem styrkir húð á efra baki og hliðum. Þetta háþróaða ferli er hannað til að endurnýja, tóna, styrkja og lyfta húðinni á svæðinu án allra óþæginda.
Skref 1: Meðferðin hefst með LED-ljósameðferð til að örva kollagenframleiðslu og bæta teygjanleika húðarinnar. Þetta mjúka, róandi skref undirbýr húðina með því að styrkja hana og skapa þannig grunn fyrir dýpri virkni.
Skref 2: Næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög til að örva húðstyrkingu og stinnleika. Með því að hita húðina með þessum hætti myndast svokallaður staðbundinn bruni en án óþæginda, sem hvetur líkamann til að margfalda kollagen- og elastínframleiðslu á meðferðarsvæðinu, ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er þéttari og stinnari húð.
Skref 3: Í þessu skrefi er beitt mildum neikvæðum þrýstingi sem örvar sogæðakerfið, losar um eiturefni og dregur úr bólgum. Þetta skref fíneserar húðina, bætir blóðflæði og sogæðaflæði og flýtir þannig fyrir ferlinu við að styrkja húðina.
Skref 4: Að lokum er öflugu húðstyrkjandi serumi þrýst inn í dýpri húðlögin með nýstárlegri meðferðartækni sem nefnist "Virtual Mesotherapy". Þetta ferli eykur frásog húðarinnar, opnar húðfrumurnar í dýpri lögum og gerir virkum efnum þannig kleift að komast inn í frumurnar án þess að nota sársaukafullar nálar.
Meðferðartími: 60 mínútur
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:


Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
