Nánari lýsing
Hin fræga BBL (Brazilian Butt Lift) er nú loksins fáanleg án allra inngripa.
Mótaðu og lyftu rassinum í 80 mínútna langri meðferð.
UltraBody BUTTLIFT er bylting í mótun, stækkun og lyftingu á rassinum á öruggan máta án skurðaðgerðar.
Í UltraBody BUTTLIFT er þríglýseríðin (niðurbrotin fita með UltraBody CONTOUR tækninni) notuð til að lyfta og stækka rassinn með það að markmiði að fá velmótaðann, þéttann og stinnann afturenda.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody BBL Full Buttlift - skref fyrir skref:
Skref 1: Við byrjum á því að undirbúa fitufrumurnar á aftanverðum lærum og/eða neðra baki með mildri Laser Lipo tækni. Þetta skref örvar fitufrumurnar á svæðinu og breytir eiginleikum himnu fitufrumanna til að undirbúa svæðið fyrir næstu skref.
Skref 2: Næst förum við með öflugar hljóðbylgjur djúpt inn í fitulögin á aftanverðum lærum og/eða á neðra baki til að brjóta niður fitu í fitufrumunum – allt án nokkurra óþæginda. Með því að nota hljóðpúlsa umbreytist fitan í fljótandi þríglýseríð sem lekur svo út úr fitufrumunum þannig að eftir verður tóm fitufruma sem má helst líkja við rúsinu.
Skref 3: Næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög rassins og aftanverðum lærum til að stuðla að húðstyrkingu og stinnleika. Þessi stjórnaða hitun á húðinni örvar framleiðslu á kollageni og elastíni ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna, sem leiðir til sléttari og stinnari húðar með minni appelsínuhúð.
Skref 4: Þetta skref fíneserar húðina, bætir blóðflæði og ólíkt í öðrum meðferðum beitum við stöðugu og öflugu sogi til að losa um stíflur og bæta áferð appelsínuhúðar. Þessi tækni hámarkar lyftingu á rassinum fyrir aukin árangur. Ólíkt öðrum UltraBody meðferðum beitum við meiri sogkrafti og færum handfangið upp frá aftanverðum lærum að efsta hluta rassins til að flytja, tæma og lyfta. Brotna fitan (þríglýseríð) er með þessu móti nýtt til að móta fallegan og þrýstin afturenda.
Skref 5: Við nýtum svokallaðar þrýstiskálar í mismunandi stærðum sem eru henta hverjum og einum. Þetta lokaskref eykur fyllingu og lyftingu, og gefur fallega mótun.
Meðferðartími: 80 mínútur
Munurinn á UltraBody BBL Buttlift og UltraBody BBL full Buttlift er sá að fyrri meðferðin er hugsuð fyrir þá sem vilja móta og lyfta rassinum og vinna á húðinni en vilja minni umbreytingu og stækkun heldur en við náum með BBL FULL Buttlift meðferðinni.
Nú geturðu þétt lausa húð, losað þig við staðbundna fitu, lyft og mótað rassinn, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:

Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.




