Nánari lýsing
Hin fræga BBL (Brazilian Butt Lift) er nú loksins fáanleg án allra inngripa.
Mótaðu og lyftu rassinum í 80 mínútna langri meðferð.
UltraBody BUTTLIFT er bylting í mótun, stækkun og lyftingu á rassinum á öruggan máta án skurðaðgerðar.
Munurinn á UltraBody Colombo Buttlift og UltraBody BBL full Buttlift er sá að Colombo meðferðin er hugsuð fyrir þá sem hafa ekki fitu á aftanverðum lærum eða ástarhöldur til að vinna með. Því er fókusinn á húð ásamt stækkun og lyftingu í Colombo meðferðinni en einnig á fitusöfnun í FULL Buttlift meðferðinni.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Colombo Buttlift
Skref 1: Við byrjum með LED-ljósameðferð á aftanverðum lærum til að örva kollagenframleiðslu og bæta teygjanleika. Þetta milda, róandi skref sléttir og styrkir húðina, sem undirbýr hana fyrir dýpri endurnýjun.
Skref 2: Næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög rassins og aftan á lærunum til að stuðla að húðstyrkingu og stinnleika. Þessi stjórnaða hitun á húðinni örvar framleiðslu á kollageni og elastíni ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna, sem leiðir til sléttari og stinnari húðar með minni appelsínuhúð.
Skref 3: Við beitum stöðugu og öflugu sogi til að losa um stíflur og bæta áferð appelsínuhúðar. Þetta skref fíneserar húðina, bætir blóðflæði og ólíkt í öðrum meðferðum beitum við meiri krafti. Þessi tækni hámarkar lyftingu á rassinum fyrir aukin árangur.
Skref 4: Við nýtum svokallaðar þrýstiskálar í mismunandi stærðum sem eru henta hverjum og einum. Þetta lokaskref eykur fyllingu og lyftingu, og gefur fallega mótun.
Heildartími meðferðar er 80 mínútur.
Nú geturðu þétt lausa húð, losað þig við staðbundna fitu, lyft og mótað rassinn, án áhættu sem fylgir skurðaðgerð.
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:

Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.




