Nánari lýsing
UltraBody Arm Sculpt er háþróuð og margþrepa meðferð sem sameinar fitulosun, mótun og húðþéttingu til að skila sjáanlegum árangri á upphandleggjum.
Meðferðin er sérstaklega hönnuð til að minnka fitusöfnun ásamt því að þétta og stinna húðina á upphandleggjum og vinnur því markvisst á svokölluðum „bingóvöðvum“ sem oft svara illa hefðbundinni líkamsrækt og mataræði.
Með nýjustu tækni bætum við áferð húðarinnar, aukum teygjanleika og stinnleika og mótum upphandleggina án óþæginda.
Arm Sculpt er fullkomin lausn fyrir þá sem vilja:
• Draga úr fitusöfnun á upphandleggjum
• Móta upphandleggina
• Þétta og stinna lausa húð
• Bæta áferð húðar
• Ná sýnilegum árangri án skurðaðgerðar
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
Arm Sculpt – skref fyrir skref
Skref 1 – Niðurbrot fitu
Við beitum öflugum hljóðbylgjum sem fara djúpt inn í fitulagið og brjóta niður fitu inni í fitufrumunum.
Fitan umbreytist í vökva sem líkaminn losar sig síðan við á náttúrulegan hátt í gegnum sogæðakerfið.
Skref 2 – Frekari fitulosun með Laser Lipo
Kaldar Laser Lipo blöðkur virkja og losa þá fitu sem situr eftir í fitufrumunum til að hámarka fitulosunarferlið sem hófst í skrefi 1.
Þetta skref styður við ummálsminnkun og mótun upphandleggja.
Skref 3 – Húðþétting og styrking
Við beitum markvissum hitabylgjum sem framkalla svokölluð staðbundin „brunaáhrif“ (án óþæginda).
Þetta örvar húðina til að:
→ auka kollagenframleiðslu
→ auka elastínframleiðslu
→ þétta og styrkja húðina
→ minnka slappleika
→ bæta áferð og yfirborð húðar
Niðurstaðan: stinnari, sléttari og betur mótaðir upphandleggir.
Skref 4 – Örvun sogæðakerfisins
Meðferðinni lýkur á sogæðanuddi með mildum neikvæðum þrýstingi sem eykur:
→ blóðflæði
→ sogæðaflæði
→ náttúrulega fitulosun líkamans
Þetta hjálpar líkamanum að losa sig hratt og vel við fituna sem brotin var niður í meðferðinni og stuðlar að hraðari og betri árangri.
Skref 5 – Húðstyrkjandi Serum
Að lokum er öflugu húðstyrkjandi serumi þrýst inn í dýpri húðlögin með nýstárlegri meðferðartækni sem nefnist "Virtual Mesotherapy eða Virtual Needle". Þetta ferli eykur frásog húðarinnar, opnar húðfrumurnar í dýpri lögum og gerir virkum efnum þannig kleift að komast inn í frumurnar án þess að nota sársaukafullar nálar.
Meðferðartími: 70 mínútur

Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Ábyrgð á Árangri
Með því að kaupa 12 skipti af UltraBody Sculpt meðferð eða 10 vikna Reset and Transformation prógram getur þú átt möguleika á að fá ábyrgð á þínum árangri, sjá hér.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:



Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
