Nánari lýsing
Í TUMMY Sculpt meðferðinni vinnum við á fitusöfnun á magasvæðinu, mótum mittið, þéttum lausa og slappa húð og vinnum á húðslitum ásamt almennri mótun á svæðinu öllu.
Í AB Sculpt sem er sama uppsetttning á meðferð og Tummy Sculpt leytumst við að því að móta magavöðvana með það að markmiði að ná fram þessum svokallaða "six pack". AB sculpt er fyrir fólk sem er núþegar í góðu líkamlegu formi með litla fitu á magasvæðinu en langar í þetta extra "touch" til að framkalla magavöðvana og móta þá
Mini útgáfan af meðferðinni er sérsniðin fyrir minni meðferðarsvæði, sem gerir meðferðartímann styttri en í hefðbundinni meðferð. Því nær yfirferðin í tímanum yfir minna svæði. Hún hentar vel þegar vandamálið er afmarkað á litlu svæði, en markmiðið er samt sem áður að hámarka árangur.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Mini Tummy Sculpt / AB Sculpt
Mótun á kvið
Þessi byltingarkennda meðferð er hönnuð til að vinna á þrálátri kviðfitu, auka þéttingu húðarinnar og móta kviðinn án allra óþæginda.
Skref 1: Við byrjum á því að virkja og undirbúa fituna í fitufrumunum á kviðsvæðinu með mildri Laser Lipo tækni sem örvar fitufrumurnar og breytir eiginleikum himnu fitufrumunnar.
Skref 2: Næst förum við með öflugar hljóðbylgjur djúpt inn í fitulögin til að brjóta niður fitu í fitufrumunum – allt án nokkurra óþæginda. Með því að nota hljóðpúlsa umbreytist fitan í fljótandi þríglýseríð sem lekur svo út úr fitufrumunum þannig að eftir verður tóm fitufruma sem má helst líkja við rúsinu.
Skref 3: Í þessu skrefi beitum við sértækum hita á dýpri húðlög til að örva húðstyrkingu og stinnleika. Með því að hita húðina með þessum hætti myndast svokallaður staðbundinn bruni en án óþæginda, sem hvetur líkamann til að margfalda kollagen- og elastínframleiðslu á meðferðarsvæðinu, ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er þéttari og stinnari húð og minni appelsínuhúð.
Skref 4: Í lokaþrepinu notum við neikvæðan þrýsting til að örva sogæðakerfið, hjálpa til við að losa út eiturefni og óæskilega fitu úr líkamanum. Þetta ferli eykur sogæða- og blóðflæðið, sem hraðar náttúrulegri getu líkamans til að fjarlægja fituna sem við brutum niður út úr líkamanum á skilvirkan hátt. Með því að styðja við þessa náttúrulegu losun eflum við virkni meðferðarinnar og styðjum við ferli líkamans til ná fram hraðari árangri.
Heildartími meðferðar er 35 mínútur.
Viltu vita hvort Mini Tummy Sculpt henti þér?
Bókaðu þér tíma í fría ráðgjöf án allra skuldbindinga hjá sérfræðingi hér
Ultra Body CONTOUR er byltingarkennd, örugg, sársaukalaus og þægileg leið til að minnka fitu, móta línur og þétta húðina án inngripa.
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.

Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:

Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
ATH! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.


