Nánari lýsing
Í Mini Thigh Lift meðferðinni vinnum við á lausri húð á lærum, við þéttum og stinnum slappa húð á svæðinu og brjótum niður appelsínuhúð.
Mini útgáfan af meðferðinni er sérsniðin fyrir minni meðferðarsvæði, sem gerir meðferðartímann styttri en í hefðbundinni meðferð. Því nær yfirferðin í tímanum yfir minna svæði. Hún hentar vel þegar vandamálið er afmarkað á litlu svæði, en markmiðið er samt sem áður að hámarka árangur.
Fyrsta skrefið er alltaf persónuleg ráðgjöf
Áður en meðferð hefst leggjum við áherslu á að byrja á faglegri ráðgjöf þar sem við greinum stöðuna, skoðum markmiðin þín og metum hvaða árangur er raunhæfur fyrir þig.
UltraBody meðferðir eru alltaf sérsniðnar að hverjum og einum því skiptir máli að velja rétt prógramm frá upphafi til að ná sem bestum árangri.
👉 Bókaðu ráðgjöf og fáðu skýra sýn á næstu skref
UltraBody Mini Thigh Lift
Mini Thigh Lift meðferðin okkar er sérstaklega hönnuð til að stinna, þétta og styrkja húðina á lærunum. Þessi öfluga 4 þrepa meðferð fyrir lausa húð, eykur teygjanleika, þéttleika og stinnleika húðarinnar á lærunum. Með nýjustu tækni bætum við áferð húðarinnar og veitum góða lyftingu – án skurðaðgerðar.
Skref 1: Við byrjum með LED-ljósameðferð til að örva kollagenframleiðslu og bæta teygjanleika á lærsvæðinu. Þetta mjúka, róandi skref undirbýr húðina með því að slétta og styrkja hana og skapa þannig sterkan grunn fyrir dýpri endurnýjun.
Skref 2: Næst er beitt sértækum hita á dýpri húðlög til að stuðla að húðstyrkingu og stinnleika. Þessi milda en áhrifaríka upphitun örvar líkamann til að auka framleiðslu á kollageni og elastíni ásamt því að flýta fyrir endurnýjun frumna. Niðurstaðan er sléttari og stinnari húð með minni appelsínuhúð.
Skref 3: Í þessu þrepi beitum við neikvæðum þrýsting með sérstöku ferli fyrir appelsínuhúð til að örva sogæðaflæði og auka blóðflæði, sem hjálpar til við að losa um fasíur, bólgur og stíflur. Þetta öfluga skref bætir áferð appelsínuhúðar og eykur sogæðaflæði, sem hraðar náttúrulegri getu líkamans til að losa út eiturefni og óæskilega fitu. Með því að styðja við þessa náttúrulegu losun eflum við virkni meðferðarinnar og styðjum við ferli líkamans til ná fram hraðari árangri.
Skref 4: Að lokum er öflugu húðstyrkjandi serumi þrýst inn í dýpri húðlögin með nýstárlegri meðferðartækni sem nefnist "Virtual Mesotherapy eða Virtual Needle". Þetta ferli eykur frásog húðarinnar, opnar húðfrumurnar í dýpri lögum og gerir virkum efnum þannig kleift að komast inn í frumurnar án þess að nota sársaukafullar nálar.
Meðferðartími: 40 mínútur
UltraBody meðferðirnar sameina nokkra þætti í einu og sömu meðferðinni og er þetta því heildstæð meðferð sem vinnur á staðbundinni fitu, húðstyrkingu og húðþéttingu, appelsínuhúð og líkamsmótun allt í senn.
Hér má sjá sýnishorn af árangursmyndum okkar viðskiptavina:


Kynntu þér UltraBody betur hér
Möguleiki að greiða með kortum og fá kortalaus lán með Netgíró og Pei hér á netversluninni. Einnig er möguleiki að kaupa meðferðir og pakka með raðgreiðslum á kreditkort og er það þá gert hjá okkur á staðnum.
Ath! Vegna mikillar eftirspurnar getur verið nokkra vikna bið í ákveðnar meðferðir og því hvetjum við ykkur til að bóka meðferðir og meðferðarpakkana með góðum fyrirvara.
